Fara í efni

UPPGJÖF FRÉTTABLAÐSINS

FB logo
FB logo

Birtist í Fréttablaðinu 10.08.
Dauft var yfir leiðarasíðu Fréttablaðsins á laugardag. Uppgjafartónn í leiðara, og litlu betri var Þorsteinn Pálsson, fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins, sem virðist helst sjá það aðfinnsluvert í íslenskum stjórnmálum að ríkisstjórnin skuli "sitja uppi" með "andóf og tafleiki" af hálfu nokkurra stjórnarþingmanna og ráðherra í Icesave málinu. Þar er m.a. átt við undirritaðan.

Steinunn Stefánsdóttir kallar leiðara sinn "Það er búið sem búið er". Þar er viðkvæðið svipað og hjá Þorsteini, búið sé að semja og síðan er því slegið fram að "hver dagur" sé dýr sem líði án þess að gengið sé frá ríkisábyrgð á Icesave-samningnum. Hvers vegna skyldi hver dagur vera dýr? Vegna þess að okkur séu ella allar bjargir bannaðar hér innanlands og vegna tafa á gjaldeyrislánum. En hversu mikill á gjaldeyrisforðinn að verða og hve mikils er til kostandi? Eru þau Steinunn og Þorsteinn sammála Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um að þessi þrjú hundruð þúsund manna þjóð þurfi 5,2 milljarða Bandaríkjadala forða, sem kemur til með að kosta okkur upp undir 20 milljarða kr. árlega í nettóvexti? Gæti dugað helmingi minna? Er ef til vill meira um vert í þröngri stöðu að leggja höfuðáherslu á lækkun vaxta og fara hægara í sakirnar með slökun gjaldeyrishafta? Ég sakna þess að fréttaskýrendur reyni að taka þátt í gagnrýninni umræðu og velti vöngum yfir valkostum Íslands.

En það krefst úthalds að gefast ekki upp, loka augunum; segja að við séum búin að fyrirgera öllum rétti okkar og verðum að leggja allt traust á AGS.

Staðreyndin er sú að enn höfum við ekki gengist í ríkisábyrgðina þótt sumir hafi verið til þess albúnir að undirgangast hana án þess að gera minnstu tilraun til að kynna sér samninginn! Okkur ber skylda til að tryggja okkur eins vel og hægt er inn í framtíðina. Ef við leikum af okkur þá þurfum við að hafa styrk til að endurmeta stöðuna - svo lengi sem það er hægt.

Í Icesave samningnum er okkur gert að greiða vexti frá síðustu áramótum af meintri skuld við Breta og Hollendinga enda þótt Evróputilskipunin kveði ekki á um að slík kvöð vakni fyrr en undir júlílok. Þetta gera 100 milljónir á dag. Það munar um hvern dag Steinunn. Heilsugæslan á höfðuborgarsveiðinu fékk 500 milljóna skuldabagga í arf út úr þenslutímanum. Það jafngildir vöxtum af Icesave yfir Verslunarmannahelgina. Það getur orðið okkur dýrkeypt að búa við fjölmiðla sem hafa ekki hugrekki og staðfestu til að horfast í augu við vanda okkar og þora aldrei að endurmeta það sem gert er. Ég ætla að vona að menn gangi ekki til viðræðna við Evrópusambandið með þá uppgjöf í farteskinu sem birtist okkur í Fréttablaðinu sl. laugardag.