Greinar Apríl 2011
...Staðreyndin er sú að við Steingrímur J. Sigfússon höfum verið
nánir félagar svo lengi sem ég man eftir mér í pólitíkinni. Og
fyrir kynni okkar þar var okkur vel til vina á fréttastofu
Sjónvarps, í þann mund sem Steingrímur var að hefja innreið sína í
pólitíkina og ég í verkalýðspólitíkina. Þetta var upp úr 1980. Á
langri vegferð höfum við að sönnu orðið ósammála um einstök mál -
mjög heiftarlega um Icesave - því er ekkert að leyna. En
miklu oftar höfum við verið fullkomlega samstiga og eru góðar
minningar af góðu samstarfi miklu fleiri en þær sem eru miður
góðar. En í þessu máli var félaga mínum lítið gefið um mína
framgöngu sumarið og haustið 2009 og framá árið 2010 og mér ekki
sérlega skemmt yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar. Síðan tók málið
breytingum sem kunnugt er og aftur náðum við saman...
Lesa meira

Það var hressandi að koma til Ísafjarðar á ríkisstjórnarfund en
lengi höfðum við haft á prjónunum að halda fund á
Vestfjörðum. Í tengslum við ríkisstjórnarfundinn var efnt til funda
þar sem okkur var kynnt starfsemi í atvinnu-, menningar- og
menntamálum. Þá var haldin sameiginleg ráðstefna ríkisstjórnar og
vestfirskra sveitarstjórnarmanna um málefni sem á þessum landshluta
brenna. Þar loga svo sannarlega eldarnir í þeim skilnigi að fólki
hefur fækkað og þrengst hefur að sveitarfélögunum í seinni
tíð. Margt hefur þarna vegið þungt en þyngst án efa að missa
heimildir til fiskveiða til annarra landshluta.
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Allt Frá lesendum