HEIÐURSMERKI HRÓSHÓPSINS
Sannast sagna
hafði ég gaman af - og þótti heiður af því - að taka á móti
heiðursmerki Hróshópsins sem kemur fram í nafni
Búsáhaldabyltingarinnar og hrósar fyrir það sem hópurinn telur vel
gert. Í stífum norðannæðingi fyrir framan Stjórnarráðið í gær, rétt
fyrir ríkisstjórnarfund, var nælt í mig merki og mér færður
blómvöndur. Tilefnið var að sýna samstöðu gegn því að Ísland verði
selt "fyrir stundargróða". Stundum hafa mér hlotanst viðurkeningar
en heiðursmerki Hróshóps Búsáhaldarbyltingarinnar þótti mér einna
vænst um. Ávarp fylgir hér með en það var lesið upp í hífandi
rokinu við Stjórnarrráðið....
Ögmundur Jónasson, heiðraður 29. nóvember, 2011 við Stjórnarráð
Íslands.
Kæri Ögmundur, það er með mikilli ánægju að við í Hróshópnum,
skulum fá hér tækifæri að veita þér heiðursorðu
Búsáhaldabyltingarinnar fyrir það að segja nei við sölu Grímstaða á
fjöllum til erlendra aðila. Við teljum að þarna hafi hurð skollið
nærri hælum og það fordæmi gefið sem ekki hefði verið hægt að vinda
ofan af.
Við trúum því einfaldlega ekki að það þurfi að selja Ísland, til
þess að geta lifað á Íslandi. Landið okkar er það eina sem við
eigum, mann fram af manni í gegnum aldirnar. Við höfum lært að nýta
það og lifa þannig af því en um leið og við förum að selja landið
okkar fyrir stundargróða, þá erum við á hættulegri braut. Við erum
öll hér sammála um að landið og auðlindir þess eigi skýlaust að
vera í eigu þjóðarinnar en ekki ganga kaupum og sölum á erlendum
markaði.
Sem betur fer varst þú til staðar og stóðst gegn þessari
glæfralegu jarðasölu og fórst að landslögum.
Okkur er ljóst að þú hafir þurft að búa við mikinn þrýsting um
að samþykkja þessa stærstu jarðasölu á Íslandi á síðari tímum.
Okkur er einnig ljóst að þú hefur þurft að sitja undir
stöðugum köguryrðum og svívirðingum, sérstaklega frá ráðherrum og
þingmönnum Samfylkingarinnar, samstarfsfólki þínu í núverandi
ríkisstjórn. Hafi þeir skömm af framkomu sinni svo lengi sem
Íslandssaga verður sögð.
Það er því miður að verða sjaldgæft að ráðherra taki hagsmundi
almennings fram yfir hag fjármagnseigenda, en það gerðir þú,
Ögmundur Jónasson, og því hefur Hróshópurinn einróma ákveðið að
sæma þig orðu Hróshópsins, Heiðursorðu
Búsáhaldabyltingarinnar.
Hafðu kæra þökk okkar allra hér og fjölmargra annarra landsmanna
sem er létt, að ekki sé hafin útsala á Íslandi til erlendra
peningamanna.
Heill þér Ögmundur Jónasson,
Fyrir hönd Hróshópsins,
Ólafur Sigurðsson
Sjá Svipan.is: http://www.svipan.is/?p=27294