Fara í efni

DÓMSTÓLALEIÐ: TIL UPPRIFJUNAR

Frettablaðið
Frettablaðið

Birtist í Fréttablaðinu 24.04.12.
Þessa dagana heyrist sagt að annað hvort hafi menn viljað samningaleið eða dómstólaleið í Icesave; verið samningamenn eða dómstólamenn! Og nú hafi þeir sem vildu dómstólaleiðina fengið sínu framgengt!
Þannig var þetta náttúrlega ekki. Icesave skuldbindingarnar átti að greiða úr þrotabúi Landsbankans eða eftir atvikum úr Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta. En eins og við vitum varð reyndin sú, að til að skapa traust á eigin fjármálakerfi, greiddu Bretar og Hollendingar upp tap innistæðueigenda innan sinna landamæra. Síðan reyndu bresk og hollensk stjórnvöld að þröngva okkur til samninga um endurgreiðslur með ríflegum vöxtum að viðbættum tilkostnaði þeirra við samningaumleitanir!
Rökrétt svar Íslendinga var eftirfarandi: Ef þið teljið ykkur eiga fjárkröfu á íslenska ríkið í staðinn fyrir viðkomandi banka og Tryggingasjóð innstæðueigenda, þá eigið þið að leita réttar ykkar fyrir dómstólum. Hvaða dómstólar væru það? Héraðsdómur Reykjavíkur, hvort sem væri gagnvart Landsbankanum sem á heima í Reykjavík eða íslenskum skattborgurum því þar er varnarþing íslenska ríksins.
En þetta var hægara sagt en gert. Í samningaviðræðum um Icesave vildu Bretar og Hollendingar að þeir hefðu forræði um dómsmálið og gætu ákveðið að fara með það fyrir evrópskan dómstól sem yrði úrskurðaraðili en ekki íslenskir dómstólar. Við sögðum á hinn bóginn að íslenskur dómstóll ætti að dæma en að illmögulegt yrði að meina stefnanda að óska eftir áliti frá EFTA-dómstólnum ef hann krefðist þess. Það yrði þó aldrei meira en álitsgerð.
Þau sem lögðust gegn þvingunarsamningum Breta og Hollendinaga litu aldrei á það sem sérstaka óskastöðu fyrir íslenska skattgreiðendur að lenda í deilum fyrir rétti. En þeim sem teldu á sér brotið væri hins vegar í lófa lagið að leita réttar síns fyrir dómstólum í stað þess að beita ofbeldi í krafti valds hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða hjá Evrópusambandinu eins og gert var. Ef Bretar og Hollendingar teldu sig eiga fjárkröfur á  íslenska ríkið vegna innistæðna í gjaldþrota einkabanka, þá ætt þeir að snúa sér til Héraðsdóms Reykjavíkur. Það væri vissulega dómstólaleið sem þessi ríki gætu farið.  Þar með væri þó ekki lögð blessun yfir rangláta kröfugerð þeirra.  Hinn eðlilegi farvegur væri þrotabús- og innistæðutryggingasjóðsleið!
Nú hefur framkvæmdastjórn ESB bætt gráu ofan á svart með aðkomu sinni að málshöfðun gegn Íslandi. Það breytir því ekki að niðurstaðan verður ekki ráðin í Brussel heldur í Reykjavík.