Fara í efni

EVA JOLY SAGÐI ÞAÐ

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus

Birtist í Fréttablaðinu 23.04.13.
Mér er minnisstætt hvað Eva Joly sagði þegar hún kom hingað til lands stjórnvöldum til ráðgjafar um rannsókn á þeim þáttum bankahrunsins sem gætu varðað við lög.
Það var á þá leið að þegar liði á yrði margt gert til að torvelda rannsókn mála;  gera rannsakendur tortryggilega, aðferðir þeirra og framgangsmáta, jafnvel þá sem persónur.
Það er mikið inngrip í líf manna þegar gjörðir þeirra eru settar undir rannsókn lögreglu, viðskipti þeirra og bankafærslur skoðaðar, símar jafnvel hleraðir og töluvpóstur haldlagður. Einmitt þess vegna hef ég viljað setja strangar reglur um hvenær heimilt er að beita rannsóknaraðferðum sem ganga svo nærri friðhelgi manna.  Hef ég þar viljað ganga lengra til verndar friðhelgi einstaklingsins en flestir forverar mínir og meirihluti Alþingi hefur fallist á.  En þegar rökstuddur grunur er á stórfelldum brotum sem valdið hafa einstaklingum, hópum eða jafnvel samfélaginu öllu miklum skaða - eins og óneitanlega gerðist með sviksamlegum aðgerðum í fjármálakerfi okkar - þá geta rannsóknahagsmunir réttlætt inngrip, alltaf þó með skýrri skírskotun til laga og reglna og samkvæmt dómsúrskurði.
Rannsóknum lögreglu á framangreindum forsendum hefur nokkuð verið andmælt og hafa slík andmæli farið vaxandi eftir því sem liðið hefur á þetta ár. En ekki virðast þeir sem nú andmæla hafa haft áhyggjur af rannsóknar- og eftirlitstörfum lögreglu í tímans rás, reglum sem áður voru mjög óskýrar og rannsóknir gátu jafnvel beinst að stjórnmálasamtökum eða grasrótarhópum. Og ekki virðast áhyggjurnar heldur beinast að þeim sem grunaðir eru um verslun með fíkniefni svo dæmi séu tekin.  
Nei, það eru hvítflibbamenn sem áhyggjur beinast einvörðungu að. Og eftir því sem líður á rannsókn hugsanlegra hvítflibbabrota þeim mun háværari verða andmælendur. Gott ef ekki er farið að gæta tilhneigingar til að grafa undan trúveruðugleika embættis Sérstaks saksóknara og jafnvel persónum sem þar starfa.
Kannski þarf þetta ekki að koma neinum á óvart. Ekki þeim sem hlustuðu á Evu Joly á sínum tíma. Því það var nákvæmlega þetta sem hún sagði að myndi gerast.