Fara í efni

FUNDUÐ FÉ?

Frettablaðið
Frettablaðið

Birtist í Fréttablaðinu 25.04.13.
Í pistli sem thorgils@frettabladid.is  skrifar á ritstjórnarsíðu Fréttablaðsins í gær undir fyrirsöginni Fundið fé er fjallað um þá áráttu ráðherra að koma færandi hendi fyrir kosningar, skrifandi upp á framtíðarskuldbindingar án nokkurra heimilda. Loforðin eru þá gefin um fé sem ekki er í hendi. Einhverra hluta vegna er ég heiðraður sérstaklega með myndbirtingu og talin upp meint loddaratrikk mín. Þetta þarfnast leiðréttingar við.
1. Fangelsi á Hólmsheiði. Hið rétta er að þar ákvað Alþingi á sl. þingi að veita fjarmunum til nýrrar fangelsbyggingar eftir rúmlega hálfrar aldrar þjark og stöðnun. Fyrstu skóflustungu fögnuðu starfsmenn Fangelsisstofnunar, fangaverðir , lögreglumenn og fleiri nýlega.
2. Endurnýjun björgunarflota Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Hið rétta er að þar hefur Alþingi samþykkt þingsályktunartillögu þingmanna úr öllum flokkum undir forystu Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forseta Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, og ákvað að veita 30 milljónum króna árlega í átta ár til þessa löngu tímabæra verkefnis. Samtökin efndu til fundar með fréttamönnum í tilefni þess að samkomulagið var undirritað.
3. Ný flugstöð í Reykjavík. Hið rétta er að eftir áralangt þjark tókst að reka endahnút á deilur ríkis og borgar um flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Það mun hafa það í för með sér að unnt verður að reisa nýja flugstöð enda gengur andvirði sölu á landi upp í þá framkvæmd. Í samkomulagi sem undirritað var gengur borgin að þeim kröfum sem við höfum teflt fram og varða öryggi flugsins.
Síðan nefnir thorgils@frettabladid.is að ég sé á förum til Vestmannaeyja að skýra opinberlega frá stöðunni í ferjumálum ásamt bæjarstjórn Vestmannaeyinga. Aftur þar er um að ræða fé sem fjárveitingarvaldið á Alþingi hefur ákveðið að ráðstafa. Það er eðlilegt að fulltrúi framkvæmdavaldsins greini frá stöðu mála í lok kjörtímabils.
Hér eru því engin trikk á ferðinni ágætur thorgils@frettabladid.is, engar framtíðarávísanir án innistæðu, ekkert fundið fé upp úr hatti, aðeins fé sem Alþingi hefur samþykkt að veita til þessara þörfu verkefna.