Fara í efni

HAFA ÍSLENSKIR STJÓRNMÁLAMENN VERIÐ HLERAÐIR Á SÍÐUSTU ÁRUM?

usa hleranir 2
usa hleranir 2
Upplýsingarnar um að Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hafi verið hleruð, koma frá lýðræðisuppljóstraranum Edward Snowden. Sömuleiðis upplýsingar um njósnir Bandaríkjamanna á öðrum þjóðarleiðtogum og tugþúsundum, ef ekki hundruð þúsunda annarra. Enn á þessi mynd eftir að skýrast nánar.

Enginn véfengir að þessar njósnir hafi átt sér stað. Ekki heldur Bandaríkjastjórn. Í Evrópu er nú unnið að því að koma á fót sérstökum starfshópi sérfræðinga til að fjalla um upplýsingar Edwards Snowden um njósnir bandarískra yfirvalda. Reiði manna fer vaxandi. Í Bandaríkjunum er einnig rísanadi alda mótmæla. Miðað við aðstæður hljóta mótmæli þjóðarleiðtoga þó enn sem komið er að teljast linkuleg.

Upplýst hefur verið í fréttum að  utanríkisráðuneytið íslenksa hafi ítrekað lýst andstöðu og áhyggjum af tilefni þessara frétta.

En hefur þess verið krafist að bandarísk yfirvöld svari því formlega hvort íslenskir stjórnmálamenn hafi verið hleraðir á undanförnum árum og ef svo hafi  verið,  þá hverjir og af hvaða tilefni?

Þetta þarf að upplýsa og mun ég ganga eftir því að þessar spurningar verði bornar upp við bandarísk stjórnvöld og síðan að svörin verði birt opinberlega.

Áður hefur komið fram að íslenskir þegnar hafi verið hleraðir. Þar er um að ræða skýlaust brot á íslenskum lögum og stjórnarskrá  einsog ég benti á í ræðu á Alþingi síðastliðið vor:

http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20130704T230250

Sjá ennfremur:

https://www.ogmundur.is/is/greinar/stydjum-edward-snowden