RÍKIÐ KAUPI GRÍMSSTAÐI Á FJÖLLUM

Í dag mælti ég fyrir þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem
mælst er til þess að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjöllum. Einnig mælti
ég fyrir þingsályktunartillögu um að fram fari endurskoðun á
lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.
Bæði eru þessi mál endurflutt en áður hafði Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir flutt þessi þingmál á fyrri þingum. Síðari málinu
fylgir afar vönduð greinargerð, sem ég vek sérstaklega athygli á,
vilji menn kynna sér lagaumhverfi landakaupamála.
Fyrra málið byggir á áskorun sem birtist sem heilsíðuauglýsing
í lok ágústmánaðar árið 2012 með undirskriftum um 150
einstaklinga. Í umræðunni í dag las ég upp nöfn allra þessara
einstaklanga og sagði að Alþingi hlyti að taka alvarlega áskorun
sem kæmi frá eins breiðum hópi Íslendinga og hér um ræðir.
Ég vakti athygli á því í upphafi ræðu minnar að á umræddri
auglýsingu væri "fyrrverandi forseti Íslands, læknir og
leigubílstjóri, verktaki, Megas og formaður Sambands ungra
bænda." Þau sameinuðust öll í áskorun til Alþingis og
ríkisstjórnar að ríkið festi kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og
tryggði þar með þá jörð og aðrar ámóta í þjóðareign. Á
undirskriftalistanum væru margir fleiri "ungir og aldnir, konur
og karlar og alla vega á litinn í pólítík. Eins og straujað hefði
verið yfir allan fyrri ágreining Morgunblaðsins, Þjóðviljans og
Alþýðublaðsins því þarna voru þeir allir: Styrmir, Helgi Már og
Kjartan Ólafsson - og Matthías. Líka Björk, Guðrún Kristjánsdóttir
myndlistarkona, Guðmundur sundkappi Gíslason og Ólafur Stefánsson,
handboltastjarna."
Síðan las ég upp allan listann. sannfrétti ég eftirá að
mörgum hefði þótt upptalningin fróðleg.
Hér má hlýða á upplestur listans::
http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20140211T174932
Hér er slóð á umræðu um endurskoðun á lagaumhverfi um uppkaup á
landi:
http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20140211T180337
Slóð á Grímsstaðamálið: http://www.althingi.is/altext/143/s/0530.html
Slóð á landauppkaupamálið : http://www.althingi.is/altext/143/s/0532.html