ÚTÚRDÚR HÖLLU ODDNÝJAR OG VÍKINGS HEIÐARS

Snúinn er aftur á sjónvarpsskjáinn þáttur þeirra hjóna Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur og Víkings Heiðars Ólafssonar. Þar með hefur meðaltalsgæðastuðull Sjónvarpsins hækkað verulega og er það vel. Veitti ekki af kann sá að segja sem er orðinn þreyttur á myndum í Sjónvarpinu sem varað er við að börn og ungmenni sjái sökum ofbeldis og illvirkja.
Útúrdúr, einsog þátturinn heitir, segir mér tvennt. Í fyrsta
lagi að hægt er að framleiða hágæðaefni með litlum tilkostnaði ef
virkjaðir eru miklir hæfileikar og frjótt ímyndunarafl. Í öðru lagi
að talað orð og tónar geta orðið skemmtilegt sjónvarpsefni ef
framreitt er af hugkvæmni.
Skemmtilegar voru vangaveltur um hina "kollektívu
hlustun" og hverju tíðarandinn fær ráðið í
áheyrendasalnum svo og um ýmis tilbrigði
þagnarinnar.
Útúrdúr er kannski réttnefni á þessum dagskrárlið að því leyti að
þátturinn er frábrugðin því efni sem sem myndar uppistöðu
sjónvarpsefnis sem hér er á boðstólum - eins konar útúrdúr frá hinu
hefðbundna.
En fyrir þáttinn fær Sjónvarpið prik og bestu þakkir. Og
þáttastjórnendurnir uppskera lof og þakkir.
Áður hef ég vikið að þáttum þeirra Víkings Heiðars og Höllu
Oddnýjar, sbr. hér: http://ogmundur.is/annad/nr/6843/