Fara í efni

FYRST ÞINGVELLIR SVO ALLIR HINIR!

FB logo
FB logo
Birtist í Fréttablaðinu 14.07.15.
Gestkomandi vinkona okkar dvaldi hjá okkur um einnar viku skeið um síðustu mánaðamót. Við fórum víða um, skoðuðum söfn í Reykjavík, Bláa Lónið, Krísuvík og Víkingasafnið í Reykjanesbæ. Fórum á Þingvöll, Gullfoss og Geysi, komum við í Hveragerði, skoðuðum Kerið í Grímsnesi (án þess að borga), ókum til Víkur og á Kirkjubæjarklaustur þar sem við borðuðum silung þeirra staðarmanna, áður höfðum við horft á kvikmyndasýningu á Þorvaldseyri. Ókum síðan  í Skaftafell og Jökulsárlón. Á ferðum okkar höfðum við stundum með okkur nesti, en oftar snæddum við á veitingastöðum. Við skoðuðum verslanir í Reykjavík. Í bókabúð keypti gesturinn íslenskar barnabækur í enskri þýðingu, auk mynda- og fróðleiksbóka um Ísland  og hjá Koggu voru keyptir listmunir.

Alls staðar opin veski

Alls staðar sem við fórum var mikill fjöldi ferðamanna. Sjá mátti að veitingastaðir í Reykjavík voru margir yfirfullir, öll hótel bókuð og úti á landsbyggðinni var okkur sagt að sums staðar væri enga gistingu að fá. Allt bókað. Alls staðar gat að líta fólk með seðla og greiðslukort á lofti.
Það gefur auga leið að miklir peningar streyma inn í þjóðarbúið því þeir sem selja varning og þjónustu fá  eitthvað fyrir sinn snúð og þarna myndast einnig myndarlegir skattstofnar fyrir ríki og sveitarfélög.
En mikið vill meira. Fjölmiðlar greina okkur nú frá því að til standi að rukka okkur fyrir að leggja bíl í þjóðgarðinum á Þingvöllum og þá væntanlega með tilheyrandi vörðum og rukkunarvélum.

Er þetta virkilega eftirsóknarvert?

Almennir skattar dreifast eftir efnum og ástæðum þeirra sem borga. Það gera notendagjöld hins vegar ekki. Almennt eru notendagjöld ranglátir skattar.
En það er ekki nóg með það. Yfirbragð staðanna breytist. Allt breytist í verslunarvöru. Opna frjálsa Ísland verður að Íslandi gjaldtökunnar, stimpilvélanna, varðanna ....

Koggu vegni vel

Ég vona að Koggu gangi vel og Víkingasafninu og fjölskyldunni á Þorvaldseyri og Síldarminjasafninu á Siglufirði og öllum hinum söfnunum og fólkinu sem er að skapa og selja. Við hin hjálpum þessu fólki með því að sjá fyrir gjaldfrírri grunnþjónustu svo skapandi atvinnustarfsemi í ferðaiðnaðinum fái þrifist.
Ég er ekki andvígur því að borga skatta til samfélagsins og er ég því mjög hliðhollur að hluti þessa skattfjár fari til náttúruverndar og uppbyggingar á ferðamannastöðum.

Bara byrjunin!

Fjölskylda sem fer um landið og þyrfti að borga við helstu náttúruperlur aðgangseyri eða gjald fyrir að leggja bíl gæti orðið fyrir þónokkrum útgjöldum. Það þarf enginn að ímynda sér að látið yrði staðar numið við þjóðgarðinn á Þingvöllum. Formaður atvinnuveganefndar Alþingis lýsti því yfir í vor að hann vildi heimila einkaaðilum að rukka - og sekta -  fyrir bílastæði. Og í Fréttablaðinu í byrjun vikunnar  tekur þjóðgarðsvörður á Þingvöllum undir þetta sama sjónarmið. Haft er eftir honum að rukkun á Þingvöllum sé aðeins byrjunin. Aðrir ferðamannastaðir muni fylgja í kjölfarið og einkaaðilar geti þá einnig rukkað. Þjóðgarðsmenn væru með öðrum orðum einfaldlega að ríða á vaðið. Það sem vekur ugg er óendanleg græðgi í mörgum sem vilja gera ferðamenn að gróðalind og ásetningur stjórnvalda að koma á gjaldtöku óháð eignaraðild. Þetta gerir gjaldtöku á Þingvöllum að stórvarasömu fordæmi og fyrirmynd auk þess að skemma yfirbragð Þingvalla.
 
Dýrt yrði að sýna börnunum okkar Ísland

Það verður dýrt að skoða Ísland framtíðarinnar ef þessi gjaldtaka verður ekki stöðvuð. Nú ríður á að fram fari kröftug umræða um þetta mál. Það er stærra en svo að það verði afgreitt í kyrrþey.
Óskandi væri að hugmyndin um gjaldtöku á Þingvöllum verði endurskoðuð.

Ögmundur Jónasson