Fara í efni

KASTLJÓS Á LOF SKILIÐ!

Kastljós 1
Kastljós 1


Kastljós Sjónvarpsins fer vel af stað og eiga aðstandendur þessa mikilvæga fréttaskýringarþáttar Ríkisútvarpsins  hrós og lof skilið fyrir umfjöllun sína um málefni flóttamanna.
Þátturinn á mánudag var upplýsandi, lifandi og áhrifaríkur. Svona eiga fréttaskýringarþættir að vera: Fréttamaður á vettvangi, upplýsingar reiddar fram og brotnar til mergjar og síðast en ekki síst, þau sem málefnið brennur á til staðar.
Hið síðastnefnda var áhrifaríkast, viðtölin við fólk sem hafði þolað harðræði og þjáningar og var hingað komið í okkar faðm. Nú er að sjá til þess að sá faðmur verði opinn og hlýr.