Fara í efni

Á AÐ SAMEINA RÚV OG STÖÐ 2?

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus
Birtist í Fréttablaðinu 23.12.15.
Væri hægt að sameina RÚV og Stöð 2? Hvað með blöðin, eru þau ekki að segja sömu fréttirnar? Mætti ekki ná samlegðaráhrifum þar, alla vega í einhverjum þáttum rekstursins? Á agnarsmáum svæðum í þéttbýlinu eru í einni stöppu stórar matvörukeðjur að selja sama varninginn - má ekki sameina? Og hvað með olíu- og bensínsölufyrirtækin, hvers vegna ekki sameina þau, enda keppa þau lítið sem ekkert á grunvelli verðlags - heldur fyrst og fremst hvernig þeim gengur að sannfæra landsmenn um að þau séu dugleg í skógrækt eða einhverju ámóta. Alls staðar blasa við möguleikar til að draga úr sóun - eða hvað?

Gæti verið að eitthvað annað færi forgörðum við kerfisbreytingar af þessu tagi?

Viðskiptaráð hefur eina ferðina enn kynnt herhvöt sína gegn opinberri þjónustu með tilheyrandi alhæfingum um hið illa opinbera og samneysluna. Viðskiptaráðið segist vilja spara. Og aðaltillagan er að leggja niður ÁTVR sem færir milljarða inn í ríkiskassann. Viðskiptaráð vill að þeir milljarðar renni til eigin skjólstæðinga! Svo er okkur sagt að Íbúðalánasjóður hafi verið landsmönnum dýr. Það er alrangt. Hann varð eins og samfélagið allt fyrir áföllum í hruninu en hefðu íbúðakaupendur verið betur settir ef hinir föllnu bankar hefðu verið búnir að gleypa allan húsnæðismarkaðinn fyrir hrun einsog þeir reyndu? Hefði skattborgurnum þá verið borgið? Peninga þurfti að sönnu að setja inn í Íbúðalánasjóð til að fullnægja fáránlegri kröfu EES um lágmarkseiginfjárhlutfall á sama tíma og Íbúðalánasjóður var vel haldinn að öðru leyti.

Viðskiptaráðið er ekki með neinar kröfur inn í eigin raðir. Þar er allt með miklum ágætum. Ekki þarf einu sinni að íhuga fækkun fjármálastofnana - það er bara eftirlitinu sem er ofaukið!

Það er ekkert nýtt í tillögum Viðskiptaráðs. Allt gamlar viðbrenndar lummur úr gamalgróinni hagsmunagæslu þess ráðs. Þetta eru sömu tillögur og fyrir aldarfjórðungi! Það sem er nýtt eru viðbrögðin við hinni „vel ígrunduðu" skýrslu Viðskiptaráðs. Þeim viðist fjölga á Íslandi sem ekki sjá nekt keisarans.

Auðvitað á allur ríkisrekstur að vera í stöðugri endurmótun. En það gildir um allt efnahagskerfið. Líka hið einkarekna. Stundum getur smá stofnun verið kröftugri en stór og síðan öfugt. Og stundum eru tillögur settar fram bara til að passa upp á hagsmuni. Það hefur Viðskiptaráðið gert svo lengi sem ég man eftir.

En á meðal annarra orða, hví ekki sameina Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins? Er þetta ekki sama tóbakið?