HVAÐ SEGJA EIGENDUR SÍMANS UM SKAMMARVERÐLAUNIN? Birtist í Fréttablaðinu 08.01.16.

Um áramótin veitti Viðskiptablað Fréttablaðsins verðlaun fyrir
viðskiptaafrek liðins árs og að sama skapi voru tilnefnd
verstu viðskipti ársins.
Ríkisstjórnin fékk hin jákvæðu verðlaun fyrir samkomulag við
kröfuhafa þrotabúa bankanna en Arion banki og Síminn ehf,
skammarútnefningu fyrir sölu á hlutabréfum í Símanum þar sem bæði
bankinn og Síminn féllu á siðgæðisprófi.
Hin fyrri verðlaun læt ég að sinni liggja á milli hluta að öðru
leyti en því að áhöld þykja mér vera um það hvort ekki hefði verið
nær að sæma hrægammana verðlaunum fyrir hagstæðustu viðskipti
ársins fremur en ríkisstjórnina.
Það er hins vegar skammarútnefningin sem ég staðnæmist við. Í stað
þess að Arion banki léti hlutabréf sín á opinn markað var byrjað á
því, að hætti 2007, að heimila nákomnum og vildarvinum að komast
yfir bréf á lægra verði en sýnt var að öðrum myndi bjóðast á
markaði. Sú varð og raunin. Á opnum markaði var gengið orðið hærra
og þar með virði bréfanna. Hinir nákomnu þurfa ekki lengi að sitja
á feng sínum því fljótlega geta þeir selt á makaði og hagnast
vel.
Af Símans hálfu vakti athygli að stjórnendur þar á bæ voru í hópi kaupenda. Þar ber ekki síst að horfa til stjórnenda Mílu, sem á að vera fyrirtæki aðskilið Símanum þótt hann sé undir sömu regnhlíf. Með sölunni var Síminn hins vegar nú kominn að hluta til í persónulega eign stjórnenda Mílu! Þessu var að vísu snúið til baka enda dæmafá óskammfeilni. Eftir stendur að í fjárfestingahópi í kringum forstjóra Símans högnuðust menn persónulega á braskinu.
Fjármálaráðherra lýsti því opinberlega að hann teldi þessa sölu hafa verið "klúður" og einn dómnefndarmaður Viðskitablaðsins spurði "hvort hægt væri að klúðra málum meira". Og bætti við, að "helstu leikendur virðast ætla að sleppa vel frá þessum ótrúlega gjörningi en líklega verður einhver skúringakonan rekin enda verður alltaf einhver að axla ábyrgð."
Spurning er hvort hugtakið klúður er ekki heldur kurteist hugtak yfir þetta ferli sem fyrst og fremst skrifast náttúrlega á Arion banka sem stjórnaði sölunni.
En framhjá ábyrgð stjórnenda Símans verður ekki litið og þar með
eigenda hans. Líifeyrissjóðirnir eru langstærstu eigendur Símans og
fara þar með vald sem lögbundinn sparnaðar launafólks hefur fært
þeim í hendur.
Ekki hef ég orðið var við að stjórn Símans hafi verið krafin sagna
um þetta mál. Enda ekki skúringakona.
Hitt þykir mér sýnt að lífeyrissjóðirnir þurfa að taka upp gagnrýna
umræðu um hvernig farið er með það vald sem eitt hundrað milljarða
fjarfestingargeta á ári veitir.
Almennt tel ég að lífeyrissjóðirnir hafi farið vel með vald
sitt. En er svo í öllum tilvikum? Þetta mál þyrfti að verða tilefni
til gagnrýnnar umræðu um það hvort svo er. Þeir sem vilja
lífeyrissjóðunum vel hljóta að verða hvatamenn að slíkri
umræðu.
http://eyjan.pressan.is/frettir/2016/01/08/ogmundur-stjorn-simans-ekki-krafin-svara-enda-ekki-skuringakona-gagnrynir-lifeyrissjodina/