Fara í efni

MEGI KOMANDI ÁR VERÐA FARSÆLT

Ísland í vetrarbúningi
Ísland í vetrarbúningi


Fátt er eins fallegt og Ísland í góðu skapi. Og þrátt fyrir rysjótt veður víða um landið í aðdraganda áramótanna, hafa áramótin sjálf verið falleg víðast hvar á landinu, snjór yfir öllu kalt og stillt. Ísland upp á sitt besta!
Nákvæmlega svona er æskuminning mín af nýársdegi og upphafi nýs árs. Snjór, kuldi og stilla.
Á seinni árum hafa blandast inn í þessa björtu mynd vonir um gott komandi ár.
Vinum og öllum þeim sem ég hef átt samstarf og samskipti við á árinu sem nú er liðið sendi ég þakkarkveðjur og öllum lesendum síðunnar sendi ég óskir um gott og farsælt komandi ár!