Greinar Febrúar 2016

... Staðgöngumæðrun kom einnig til umræðu, að vísu ekki á
þinginu sjálfu heldur í Félagsmálanefnd, en þar á ég sæti. Umræðan
var hatrömm. Fyrir nefndinni lágu drög að skýrslu um
staðgöngumæðrun, en á daginn hafði komið að höfundurinn,
sósíaldemókrati frá Belgíu, var jafnframt læknir við sjúkrahús í
Ghent, þar sem m.a. er fengist við staðgöngumæðrun.
Andstæðingar skýrslunnar sögðu að hér væri um að ræða óeðlileg
hagsmunatengsl og yrði skýrsluhöfundur að víkja. Ég tel að þessi
tengsl hafi verið vituð, en að andstæðingar málsins hafi
einfaldlega viljað koma í veg fyrir að umræðan færi fram. Ég
lagðist gegn því að skýrsluhöfundi yrði bolað frá, en án nokkurra
skuldbindinga ...
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Allt Frá lesendum