Fara í efni

POMPIDOU STOFNUN RÆÐIR VÍMUEFNAFORVARNIR

Pompidou 2
Pompidou 2
Síðastliðinn þriðjudag flutti ég erindi á námskeiði sem haldið var í Stokkhólmi fyrir sérfræðinga í vímuefnaforvörnum. Það er svokölluð Pompidou stofnun Evrópuráðsins sem skipulagði ráðstefnuhaldið og er þetta í þriðja skipti sem mér er boðið til fyrirlestrarhalds á vegum þessarar stofnunar, í Aþenu í haustið 2014, Reykjavík í mái síðastliðnum og nú í Stokkhólmi.

Nú er ég enginn sérfræðingur í vímuefnavörnum enda var mitt viðfangsefni aðeins óbeint tengt þeim. Það sem ætlast var til af mér var að fjalla um samstarf opinberra aðila við grasrótarsamtök í því skyni að vinna að sameiginlegum markmiðum.

Samstarf foreldrafélaga og annarra frjálsra félagasamtaka við stjórnvöld á sviði vímuefnaforvarna hefur skilað óvéfengjanlegum árangri hér á landi og reifaði ég það nokkuð auk þess sem ég leitaði víðar fanga til að örva umræðu um kosti og galla samvinnunnar á þessum sviðum sem öðrum. Naut ég þess að námsstefnuna sóttu tveir íslenskir sérfræðingar á þessu sviði, þeir Rafn Jónsson og Árni Einarsson en báður hafa þer mikla reynslu við skipulagningu forvarna og að koma á samstarfi um það markmið.

Sjá nánar um Pomidou Group:  http://www.coe.int/t/dg3/pompidou/default_en.asp

Erindi mitt er hér: (set það inn fljótlega)