Fara í efni

TIL NOKKURS NÝTUR, EN MEÐ ÓÆSKILEGAR SKOÐANIR!

Landbúnaður small
Landbúnaður small

Í morgun var mér tilkynnt að ég yrði látinn víkja úr nefnd sem fyrrverandi ráðherra  landbúnaðarmála hafði skipað mig í. Hún átti að endurskoða nýgerða búavörusamninga með hliðsjón af framtíð landbúnaðar á Íslandi.

Í skýringum við þá skipan í tíð fyrriverandi ríkisstjórnar, var mér sagt að ég hefði mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði enda komið að tengdum málum sem fyrrverandi formaður BSRB, m.a. í nefndum aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda, auk þess sem ég hefði reynslu af Alþingi og í ríkisstjórn af neytendamálum, byggðamálum og heilbrigðisþætti matvælaframleiðslunnar.

Síðan var bætt við að ekki þætti verra að ég væri hliðhollur íslenskum landbúnaði og vildi efla hinar dreifðu byggðir.

En þetta voru orð fyrri ráðherra, ekki þess ráðherra sem nú situr og það var að sjálfsögðu ekki fyrri ríkisstjórn sem rak mig heldur sú nýja.

Ný ríkisstjórn er sem kunnugt er fyrst og fremst ríkisstjórn verslunarinnar og þá sérstaklega stóru verslunarkeðjanna; þeirra sem dregið hafa til sín gríðarlega fjármuni í arð á sama tíma og landbúnaðurinn - sérstaklega sá hluti hans sem byggir á samvinnurekstri - hefur skilað raunlækkun til neytenda.

Þess vegna var fullkomlega rökrétt að fela starfsmönnum landbúnaðarráðuneytisins að hringja í mig og tilkynna mér að framlags af minni hálfu til fyrirhugaðarar vinnu væri ekki lengur óskað. Hið ósagða í skilaboðum ráðherrans var að sjálfsögðu að mér væri ekki treystandi að halda á málum í samræmi við stefnu og áherslur nýrrar ríkisstjórnar.

Hvað mig varðar er hægt að taka þessum fréttum jákvætt og líta á þær sem viðurkenningu á því að litið sé svo á, að ég gæti orðið til nokkurs nýtur í nefndarstarfinu. Nema vandinn væri vitanlega svo aftur sá, að það yrði fyrir rangan málstað!

Þá er bara að fara aðrar leiðir. Menn geta látið frá sér heyra án þess að vera í nefnd!
http://eyjan.pressan.is/frettir/2017/01/27/ogmundi-vikid-ur-nefnd-tha-er-bara-ad-fara-adrar-leidir/