Fara í efni

HVAÐ KOSTAR SANNGIRNI?

Heimildarmynd - Tjarnarbíó
Heimildarmynd - Tjarnarbíó


Það er ekki laust við að forvitni mín hafi vaknað við lestur á fréttatilkynningunni hér að neðan, alla vega þykir mér verðugt að við veltum því fyrir okkur hvers vegna fólk er tilbúið að sætta sig við alla þá mismunun og ójöfnuð sem flestir verða vitni að í lífi sínu. 
Tilraunir til að uppræta félagslegt ranglæti í einni svipan hafa ekki gefist vel og margar endað hörmulega. Það er þó engin afsökun fyrir aðgerðarleysi gagnvart félagslegu ranglæti.
Hver veit nema að heimildarmyndin og umræður í Tjarnarbíó laugardaginn 11. mars klukkan 16, gæti hreyft við okkur. Sjálfur ætla ég að láta á það reyna.

Fréttatilkynningin er hér að neðan:

"
VIÐBURÐUR HAFA HEIMILDARMYNDIR ÁHRIF???

„Hvað kostar sanngirni?" - pallborðsumræður og heimildarmynd eftir Alex Gabbay sem hefur framleitt fyrir BBC, Al Jazeera og fl.

Af hverju samþykkjir fólk gríðarlega mismunun og ójöfnuð? Þetta er ein aðalspurningin sem heimildarmyndin „Hvað kostar sanngirni?" snýst um. Komið er við í þorpum á Indlandi og við sögu koma félagsfræði rannsóknir í Noregi sem gefa til kynna að fólk sé tilbúið að sætta sig við mun meiri mismunun og ójöfnuð heldur en við myndum vilja viðurkenna. Í Atlanta eru skoðaðar rannsóknir á sanngirnisvitund apa. Í Costa Rica og á Íslandi eru tilraunir til þess að hreyfa hagkerfið í átt til meiri sanngirni skoðaðar. Hvað er sanngirni og hvað þarf til að hreyfa samfélag í átt til meiri sanngirni?

Viðburðurinn hefst kl. 16.00 „Hvað kostar sanngirni" verður sýnd og síðan taka pallborðsumræður við.

Pallborðsumræður: Samfélagsværingar, möguleg áhrif heimildarmynda á samfélag og sanngirni.

Professor Jón Gunnar Bernburg - félagsfræði Háskóla Íslands

Eileen Jerrett - frumkvöðull í heimildarmyndagerð að mati Harvard University

Hákon Már Oddsson - kvikmyndagerðarmaður

Snorri Kristjánsson - fjölmiðlafræðingur

OG Alex Gabbay - framleiðandi - Finnur Þ. Gunnþórsson leiðir pallborðið."