Fara í efni

"ICELANDAIR GROUP" TIL STUÐNINGS FLUGVALLARANDSTÆÐINGUM?

Hvassahraun
Hvassahraun

„Við höfum ekki kannað áhuga erlendra aðila á Hvassahrauni sérstaklega,
" segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í viðtali við Morgunblaðið í dag. Fyrirtækið sé enn að kanna með sjálfstæðum hætti hvort hentugt geti verið að gera flugvöll í Hvassahrauni í Vogum.„Kannanir okkar ná eingöngu til stærri véla. Ekkert hefur komið fram sem mælir gegn Hvassahrauni hvað stærri vélar varðar. Kanna þarf á sambærilegan hátt með minni vélar,"segir hann.„Við tókum þessa vinnu áfram íframhaldi af Rögnunefndinni svokölluðu ..."

Það er nefnilega það. "Icelandair Group" er að íhuga hvort skattgreiðendur og aðrir gjaldendur eigi að gera nýjan alþjóðlegan flugvöll í Hvassahrauni. Á endanum yrðum það að sjálfsögðu við, skattgreiðendur og notendur/gjaldendur, sem borguðum brúsann.

Nokkrar spurningar vakna við þessar vangaveltur þeirra hjá "Icelandair Group" og læt ég þá vatnsmengunarmál liggja á milli hluta að sinni þótt þau skipti að sjálfsögðu höfuðmáli.

1) Er það ekki rétt hjá mér að Hafnarfjarðarbyggðin sé að teygja sig í áttina að Hvassahrauni? Er þetta ekki sami Björgólfur sem ásamt Wow forstjóranum Skúla, er að íhuga hvort þeir taki ákvörðun um að gera Ísland að miðstöð fyrir flug á norðurhveli jarðar? Þykir greinlega ekki alveg nóg að fá milljónirnar sem þegar stinga hér niður fæti. Verður nokkuð pláss fyrir nýja byggð ef þeir flugfélagarnir ákveða svo?    

2) Auðvitað er erfitt að komast hjá því að byggja á eldfjallasvæði á Íslandi en setur maður nokkur hundruð milljarða í flugvöll beinlínis ofan á slíku svæði, reisir maður flugstöð og leggur flugbrautir í Hvassahrauni? Ég bara spyr.

3) Hafa menn hugleitt málið út frá sjónarhóli fegurðarinnar? Flugvallarsvæði Björgólfs þykir mér vera perla að hafa fyrir augum. Sífellt fleiri Íslendingar átta sig á því hve miklu máli skipta hughrifin sem gestkomandi fólk verður fyrir við komuna til landsins. Það lærðu Norðmenn þegar þeir futtu sinn flugvöll til Gardemoen og aka nú um litlaust heiðarlandslag í stað strandlengjunnar við Oslófjörðinn.

4) Er Keflavíkurflugvöllur ekki frábært flugvallarsvæði og gildir ekki hið sama um Reykjavíkurflugvöll? Eru það ekki yfirvöldin sem eru vandamálið fremur en flugvellirnir?