Fara í efni

GAZA Á HORNINU OG FRAMSÓKN RÆÐIR FRAMTÍÐINA

Á fróðlegum fundi sem Til vinstri við ESB efndi til um síðustu helgi á Horninu í miðbæ Reykjavíkur voru flutt tvö afbragðsgóð erindi, annars vegar af hálfu Haraldar Ólafssonar, formanns Heimssýnar, sem fór almennt yfir stöðu ESB-umræðunnar eins og hún blasti við honum og hins vegar flutti Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og forystumaður í félaginu Ísland Palestína um áratugaskeið, erindi um aðkomu Evrópusambandsins að ...
ÍSLENSK STJÓRNVÖLD TAKI UNDIR MEÐ JEFFREY SACHS - OPEN LETTER TO MERZ

ÍSLENSK STJÓRNVÖLD TAKI UNDIR MEÐ JEFFREY SACHS - OPEN LETTER TO MERZ

Hér birti ég opið bréf Jeffrey Sachs, prófessors við Columbia háskólann í Bandaríkjunum til Friedrichs Merz kanslara Þýskalands. Bréfið á erindi til allra, í rau ákall um að forða okkur frá frekari mannfórnum og eyðileggingu í Úkraínu og Rússlandi en sú hætta gerist nú sífellt meiri að ... (See open letter by Sachs to German Chancellor)
SKOÐANIR OG SKOÐANIR Á SKOÐUNUM Á VÍSI.IS

SKOÐANIR OG SKOÐANIR Á SKOÐUNUM Á VÍSI.IS

... Í morgun blöstu við tvær greinar í skoðanadálki Vísis sem tengdust þessu málefni. Annars vegar grein Guðmundu G. Guðmundsdóttur, ESB-Pakkinn, um Evrópusambandið þar sem hún hvetur til þess að hver og einn kíki í pakkann... Hins vegar skrifar Kristján Reykjalín Vigfússon, lektor í Háskólanum í Reykjavík... Hans grein ber titilinn Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB ...
ALFRED DE ZAYAS UM ÓLÖGLEGAR REFSIAÐGERÐIR BNA OG ESB (in English)

ALFRED DE ZAYAS UM ÓLÖGLEGAR REFSIAÐGERÐIR BNA OG ESB (in English)

Fyrir tæpum mánuði birti Alfred de Zayas yfirgripsmikla grein í vefritinu Covert Action Magazine um hrikalegar afleiðingar efnahagslegra refsiaðgerða Bandaríkjanna og Evrópusambandsins gegn ríkjum sem ekki láta að stjórn þeirra. Í grein sinni vísar Alfred de Zayas ítarlega í gögn og má þar nefna að breska læknaritið Lancet ætli að á ári hverju deyi um hálf milljón manna af völdum refsiaðgerða þessara ríkja ...
SARAH GLYNN HORFIR TIL TYRKLANDS OG SÝRLANDS

SARAH GLYNN HORFIR TIL TYRKLANDS OG SÝRLANDS

Hér birti ég nýjan pistil frá Söru Glynn um erfiða stöðu Kúrda í Tyrklandi og Sýrlandi eftir að Ísrael og Vesturveldin settu á laggirnar sér þóknanlega stjórn í Damaskus. Eftir að sú stjórn tók við völdum í Sýrlandi var aflétt öllum þvingunaraðgerðum Bandaríkjanna og Evrópusambandsríkja gegn Sýrlandi; áhugi þeirra fór nú annað enda hagsmunir þeirra betur tryggðir en áður var ... Sarah Glynn in English ...

ÍHALDIÐ Í BORGINNI

Í fimmtíu ár hér höfðu völd/helst því viljum gleyma/Til íbúa var oft kveðjan köld/en láta sig nú dreyma ...
SANNSÖGLI Á AÐ VERA AÐALSMERKI STJÓRNMÁLAMANNSINS

SANNSÖGLI Á AÐ VERA AÐALSMERKI STJÓRNMÁLAMANNSINS

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 16/17.05.26. Nýlega fór galgopi nokkur að stríða mér í orðaskiptum sem við áttum á samfélagsmiðli. Ég hafði haldið einhverju fram sem hann taldi ekki standast skoðun og klykkti hann út með því að segja að ég væri hættur í stjórnmálum og þyrfti að fara að venja mig á að segja satt. Mér þótti þetta sannast sagna launfyndið og minnti mig á ...

ÖGURSTUND

Íhaldið blómstrar nú borginni í/batnar þeirra hagur/En vinstrið verður að svara því/verður mikill slagur? ...
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN MINNIR Á GAMLA TÍMA

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN MINNIR Á GAMLA TÍMA

Um alla Reykjavík blasa við auglýsingaskilti þar sem segir að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að gera allt strax verði hann kjörinn til valda. Þessu hótar oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir og brosir gleitt. Varla lofar þetta góðu. Ég minnist þess að stundum áður hefur Sjálfstæðisflokknum legið á. Svo var til dæmis fyrir ...
RÉTTUR TIL KÚRDÍSKRAR TUNGU – THE RIGHT TO USE KURDISH

RÉTTUR TIL KÚRDÍSKRAR TUNGU – THE RIGHT TO USE KURDISH

Í dag - 15. maí - er dagur kúrdískrar tungu en af því tilefni fjallar pistill Söruh Glynn, sem ég hef stundum birt pistla frá, um tungu Kúrda. Hún segir stöðu tungunnar vera eins konar loftvog á það hver staða Kúrda almennt sé ... 15 May is Kurdish Language Day, but the pressures and restrictions that Kurdish is facing ensure that there is little cause for celebration. This is not surprising as the fate of the Kurdish language is a barometer ...