Fara í efni

FERHAT ENCU KEMST EKKI Á FUNDINN


Birtist í DV 04.01.19.
... Þess vegna verðum við að láta okkur nægja að minnast á Fehrat Encu í Safnahúsinu klukkan 12 á laugardag að honum fjarstöddum ...
sjá grein í DV: http://www.dv.is/frettir/2019/1/4/fehrat-encu-kemst-ekki-fundinn/ 
... 

FERHAT ENCU KEMST EKKI Á FUNDINN!

Á laugardag er efnt til fundar með fólki sem þekkir mannréttindabrot af eigin raun. Þetta eru tyrkneskir Kúrdar, Leyla Imret, sem hrakin var úr embætti bæjarstjóra í borginni Cizre í Suðaustur-Tyrklandi vegna andófs gegn ríkisstjórn Erdogans og flúði síðan land í kjölfar ofbeldis og fangelsana, og Faysal Sariyildiz, blaðamaður og þingmaður, sem sat árum saman í fangelsi og hefur kynnst mannréttindabrotum af eigin raun. Þriðji maðurinn er Fayik Yagizay, einn helsti talsmaður Kúrda í Evrópu. Sjálfur þekkir hann vel til tyrkneskra fangelsa – að innanverðu!

Parísardómstóllinn ekki í vafa um sekt!

Á síðasta ári fylgdist ég með Parísardómstólnum, sem starfað hefur allar götur frá sjöunda áratug síðustu aldar að frumkvæði heimspekinganna og mannréttindafrömuðanna Bertrands Russels og Jean-Paul Sartre, rannsaka hvort rétt væri að tyrnesk stjórnvöld hefðu framið stríðsglæpi og stórfelld mannréttindabrot í Kúrdahéruðum Tyrklands, eins og haldið hefði verið fram. Niðurstaðan var sú að svo hefði verið og léki þar enginn vafi á.
Ég ákvað þegar ég hlýddi á vitnaleiðslurnar að bjóða einhverjum vitnanna til Íslands að segja sína sögu og gera þau Leyla Imret og Faysal Sariyildiz það á umræddum fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu klukkan 12 á laugardag. 

Vildi opinbera rannsókn og var þá fangelsaður

Til hafði staðið af minni hálfu að bjóða hingað einnig  Ferhat Encu þingmanni Lýðræðisfylkingarinnar, HDP, sem er flokkur Kúrda í Tyrklandi. Hann var fangelsaður í byrjun nóvember árið 2016. Ég hafði áður valið Ferhat Encu, nánast af handahófi, sem fanga er ég vildi fylgjast með. Hann sogaðist inn í stjórnmálin eftir að hann hóf baráttu fyrir opinberri rannsókn á á fjöldamorðum sem framin voru í desember árið 2011 í fjallahéruðum sem liggja að Írak, en þau sem þá féllu fyrir sprengjuregni tyrkneska lofthersins voru á unglingsaldri og flest í fjölskyldu Ferhats, þar á meðal ung systkini hans. Í kjölfar þessara atburða bauð Ferhat sig fram til þings og var kjörinn í júníkosningunum 2015, en þá vann HDP-flokkurinn stórsigur.

Gladdist yfir umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum

Þegar ég síðan fór til Tyrklands í febrúar árið 2017 í svokallaðri Imrali-sendinefnd sem hafði valið sér það verkefni að vekja athygli á mannréttindabrotum í Tyrklandi, þar á meðal ómannúðlegri einangrunarvist Öcalans, leiðtoga Kúrda á Imrali-eyju í Marmarahafinu, reyndi ég að grennslast fyrir um hagi Ferhats Encu. Og viti menn, daginn sem við komum til Istanbúl eftir för okkar austur á bóginn var hann látinn laus úr fangelsi. Tókst að koma á fundi okkar í millum og gladdist hann mjög þegar ég sýndi honum skrif í íslenskum blöðum, m.a. í DV, um hlutskipti hans. En gleðin var skammvinn því fáeinum klukkustundum eftir fund okkar var hann aftur kominn á bak við lás og slá og er þar enn.

Allir velkomnir

Þess vegna verðum við að láta okkur nægja að minnast á Ferhat Encu í Safnahúsinu klukkan 12 á laugardag að honum fjarstöddum.
Á fundinn eru allir velkomnir.