Fara í efni

ER EKKI KOMIÐ NÓG FRÁ BRUSSEL OG NÓG AF BRUSSEL?

Nú vill Evrópusambandið “útvíkka” þjónustutilskipunina og fannst okkur mörgun hún of víð þegar henni var þröngvað í gegn fyrir fáeinum árum.
En nú vill ESB ganga lengra sbr. þessa fréttafrásögn á vefmiðlinum viljinn.is:

https://viljinn.is/frettaveita/faer-esb-yfirthjodlegt-vald-yfir-akvordunum-althingis-og-sveitarstjorna/?fbclid=IwAR2vYpNZZ2d_5HzCgrLd-jKSdbreZkwOFacvezBU7b5_6l9jvSzzNBMGzNI

En ég spyr, er ekki komið nóg frá Brussel og er kannski svoldið síðan nóg var komið af Brussel-valdinu; auðvaldinu frá Brussel? Því það er á forsendum þess, auðvaldsins, markaðshyggjunnar, sem stjórnað er frá Brussel.

Myndskreytinguna fékk ég hjá viljanum.is