Fara í efni

ÞETTA ER GERANDINN

Fram er komið að vatnasvið Jökulsár á Fjöllum á Norðausturlandi verður friðað fyrir orkuvinnslu. Nánar tiltekið verður vatnasvið árinnar og áin sjálf suður af Ásbyrgi friðlýst.

Landeigendur á svæðinu hafa hótað að höfða skaðabótamál á hendur ríkinu fyrir að skerða möguleika þeirra til orkuvinnslu í hagnaðarskyni.

Í blaðaskrifum og viðtölum fara landeigendur hörðum orðum um “gerendur” þessarar friðlýsingar.

Lesendur eru upplýstir um að höfuðgerandinn sé að sjálfsögðu umhverfisráðherrann, Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Að honum er beint eitruðum skeytum.

Ég ætla hins vegar að leyfa mér að taka ofan fyrir þessum geranda og þakka honum fyrir gjörð sína.

Jafnframt hvet ég hann til að gerast sem allra mestur gerandi í vörn fyrir náttúruperlur Íslands sem margir vilja nú braska með.