Fara í efni

RÁÐUM REIKNINGSKENNARA ÚR HAGASKÓLA


Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 23/24.11.19.
Ég minnist samtals í aðdraganda bankahrunsins þar sem rætt var um ráðningu fjárfestingastjóra í lífeyrissjóði. Margir vildu finna klókan fjármálabraskara, aðila sem þekkti kerfið af eigin raun og innan frá, með öðrum orðum, sérhæfðan “fagmann”. Slíkir aðilar væru að vísu dýrir á fóðrum en á móti kæmi að þeir væru þyngdar sinar virði í gulli. Þeirra fag væri að græða.  

Einn þessara viðmælenda var á öndverðum meiði. Sá vildi láta kanna hvort í Hagaskólanum fyrirfyndist ekki góður reikningskennari, gáfuð hófsemdarmanneskja með góða dómgreind.

Að þessu var hent gaman eða þar til fjárfestingarblöðrur sýndarveruleika fjármálalífsins tóku að springa hver af annarri, líka hjá lífeyrissjóðum.

Þetta gamla samtal kom upp í hugann þegar eftirfarandi var orðrétt haft eftir nýjum forstjóra Isavia um einkavæðingu Leifsstöðvar, alþjóðaflugvallar þjóðarinnar:

„Ef það kæmi hér inn erlendur fjárfestir sem sérhæfir sig í að fjárfesta í alþjóðlegum flugvöllum þá kemur með honum mikil þekking sem væri mjög jákvæð fyrir okkur.”

Þekking á hverju?

Fyrir nokkrum árum vorum við sum hver óánægð þegar íslenskum fyrirtækjum var hent út úr Leifsstöð, ég nefni Kaffitár og Epal. Okkur var sagt að verið væri að endurskipuleggja stöðina, erlendir sérfræðingar hefðu verið kallaðir til en séð yrði til þess að íslensk séreinkenni héldu sér og þyrftu innlend fyrirtæki engu að kvíða.

Þetta reyndust orð út í loftið. Nú er erlendur “fagaðili” nánast búinn að gleypa allan veitingarekstur í Leifsstöð. Hann yfirbauð samkeppnisaðila, en nær því svo aftur sem þannig tapaðist upp úr vösum okkar í krafti einokunarstöðu sinnar. Svona fara sannir fagmenn að. Gott fyrir okkur viðskiptavinina? Nei, en gott fyrir þeirra eigin vasa.

Og nú er verið að gefa þessum aðilum fyrir markið. Flugrekstri skal skipt upp. Alþjóðaflugvöllurinn mun blómstra en innanlandsflugið mun ekki lifa af í sérfélagi. Þá verður beðið um viðbótarfé fyrir Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri, Egilsstaði, Vestmannaeyjar, Húsavík, Höfn ... Þeirri beiðni verður hafnað enda ekkert aflögu í ríkissjóði – nema náttúrlega að við seljum hlut í Leifsstöð!

Sigurður Ingi Jóhannson, samgönguráðherra, virðist hafa séð þessa fléttu fyrir því þegar hann var spurður í sjónvarpi, hvort hann væri sammála fulltrúa Framsóknarflokkins í stjórn Isavia sem hefði greitt atkvæði gegn uppstokkun Isavia á framangreindum nótum, þá kvað hann svo vera. Hann vildi ekki einkavæða starfsemina.

Gall þá við úr horni: Hlutabréfið í Isavia er á vegum Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra. Samgöngukerfið hætti að vera samgöngukerfi við hlutafélagavæðingu og varð að fjármálakerfi. Og vel að merkja, slíkt kerfi hugsar ekki á samfélagsvísu og ræður ekki reikningskennara úr Hagaskóla sem forstjóra!

Hver er skoðun ríkisstjórnar og Alþingis? Á að láta þetta yfir okkur ganga?