Fara í efni

FRÉTTATILKYNNING UM KVÓTANN HEIM

Eftirfarandi fréttatilkynning hefur verið send út:
"Vegna kórónaveirunnar hefur verið ákveðið að afboða auglýstan hádegisfund í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ á sunnudag um kvótann heim. Mælst er til þess að fjölmennari fundir en eitt hundrað manns  falli niður og er með þessari ákvörðun orðið við þeirri beiðni þar sem allt stefndi í að fundurinn færi yfir þau mörk.  
Krafan um kvótann heim stendur hins vegar óhögguð og verður næstu sunnudaga klukkan 12 á hádegi streymt umræðu um málefnið, nánar auglýst síðar á Kvótannheim.is, sem senn fer í loftið."

Hér er komin slóðin: https://kvotannheim.is/
kvotannheim.JPG