Fara í efni

FUNDURINN SEM EKKI VARÐ – ENNÞÁ


Hinn 15. mars síðastliðinn stóð til að efna til fundar um fiskveiðistjórnunarkerfið í Reykjanesbæ þegar tilmæli bárust frá sóttvarnaryfirvöldum að ekki skyldi efnt til fjölmennra funda vegna veirufaraldursins illræmda.

Þá var brugðist við með því að senda út “sjónvarpsþætti” á netinu og hefur það verið gert vikulega á sunnudögum frá þessum tíma að einum sunnudegi undanskildum vegna tæknilegra örðugleika sem upp komu.
Allir eru þessir þættir aðgengilegir á slóðinni https://kvotannheim.is/
Nú verður gert hlé á þessum útsendingum fram yfir verslunarmannahelgi en þá munum við láta heyra í okkur enda stendur ekki til að þagna fyrr en kvótinn er kominn heim – til þjóðarinnar og til byggðarlaganna.

fundurinn sem ekki varð.JPG