Fara í efni

Í ÞJÓÐMINJASAFNINU VIÐ SUÐURGÖTU, SUNNUDAG KLUKKAN TVÖ

Sunnudaginn 12. nóvember klukkan 14 efna samstökin Málfrelsi til opins umræðufundar um hernaðinn fyrir botni Miðjarðarhafs í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu. Í fréttatilkynningu frá Málfrelsi segir:

"Málfrelsi - samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi boðar til málfundar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Markmið okkar er að efna til málefnalegrar umræðu um ólík sjónarhorn í þessu umdeilda máli.
Frummælendur eru þau Birgir Þórarinsson guðfræðingur og alþingismaður, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Diljá Mist Einarsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra og alþingismaður.
Eftir að erindum frummælenda lýkur verður tekið við spurningum úr sal.
Fundarstjóri er Bogi Ágústsson fréttamaður.
Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu og hefst kl. 14 sunnudaginn 12. nóvember."

Þorsteinn Siglaugsson formaður Málfrelsis skrifar grein um þennan fund á vefsíðu Vísis í dag, Yfirgefum bergmálshellana og tölum saman: https://www.visir.is/g/20232487715d/yfirgefum-bergmalshellana-og-tolum-saman