Fara í efni

SÖGUÞRÆÐIR

MBL -- HAUSINN
MBL -- HAUSINN

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 09.03.14.
Kunningi minn sem er á öndverðum meiði við mig í pólitík er á sama máli og ég í andstöðu við Evrópusambandsaðild. En á gerólíkum forsendum. Hann er maður markaðar, ég félagslegra lausna. Honum finnst Evrópusambandið vera pólitískt og miðstýrt. Mér finnst það draga taum stórkapítalsins. Báðum finnst skorta á lýðræðið.
Þessir þræðir liggja langt aftur. Evrópusambandið eða Efnahagsbandalagið eins og það hét  á fyrri stigum,  var stofnað með Rómarsáttmálanum árið 1957. Þremur árum síðar voru Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, stofnuð, að vissu marki sem mótvægi við Efnahagsbandalagið. Ísland gekk í EFTA árið 1970. Það var eftir nokkar deilur. Andstæðingar töldu sýnt að íslensk framleiðsla myndi eiga undir högg að sækja. Það reyndist rétt, íslensk iðnaðarframleiðsla, skipasmíðar, húsgagnaframleiðsla og fataiðnaður lögðust nánast af. Verslunarhagsmunir urðu ofan á.
Eftir inngöngu í EFTA  slíðruðu menn sverðin og löguðu sig að nýjum veruleika. Það tókst bærilega.
En heimurinn stóð ekki kyrr. Nú vildu menn að Efnahagsbandalagið yrði ríki. Nafninu var breytt úr bandalagi í samband og tekið til við að miðstýra sífellt fleiri málaflokkum að hætti sambandsríkis.
Og sambandið stækkaði . Að sama skapi kvarnaðist úr EFTA. Þau ríki sem þar stóðu eftir, tóku nú að færa sig nær ESB. Til varð hið Evrópska efnahagssvæði, EES, sem er eins konar brú á milli EFTA ríkjanna og Evrópusambandsins. Þessi brú var í upphafi fyrst og fremst á viðskiptaforsendum. En jafnt og þétt jókst umferðarþunginn um brúna og eðli umferðarinnar tók breytingum. Mál til afgreiðslu á vettvangi  EES gerðust æ pólitískari og krefjandi um kerfisbreytingar í átt að ESB stöðlum.
Þetta er ekkert undarlegt því  frá því Rómarsáttmálinn leit dagsins ljós hefur stjórnskipan ESB tekið stöðugum breytingum og er á fullri ferð í átt til miðstýrðrar samræmingar. Áhrifanna gætir í EES.
Áfanga á þessari vegferð þekkjum við, svo sem þá sem kenndir eru við Maastricht og Lissabon. Það eru heitin á pökkunum sem forvitnir geta kíkt í vilji þeir fræðast um hvað biði okkar í ESB! 
Er nú svo komið í Evrópusambandinu að nánast allt sem stríðir gegn markaðshyggju er bannað. Og ekki nóg með það, reynt er að greiða götu fjármagnsins inn í sjálfa velferðarþjónustuna og að innviðum samfélagsins. Þetta minnir á gamla umræðu um alræði markaðarins. Nema nú er það alvara.
En viti menn, fyrrnefndum markaðsmanni hrýs einnig hugur við þessari þróun. Honum hugnast ekki að  Brussel - fingur haldi um alla þræði  í samfélaginu.
Þarna erum við á einu máli. Og erum við þó ekki byrjaðir að ræða um fisk.