Kjaramál
16. Janúar 2012
SAMMÁLA BSRB, BHM OG KÍ

...En viti menn. Innan verkalýðshreyfingarinnar eru enn straumar - og virðast þeir jafnvel vera að eflast - sem ganga í þá átt að hreyfingin stofnanavæðist og gerist að uppistöðu til rekstrarstofnun; hverfi frá upprunalegu ætlunarverki sínu sem baráttu- og hagsmunagæsluaðili en leggi þeim mun meiri áherslu á hlutverk sitt sem rekstrarlegur þjónustuaðili. Skyldi það vera gott fyrir launafólk? Ekki tel ég svo vera. Skyldi það vera gott fyrir hina atvinnulausu? Nei, ekki tel ég svo vera...
5. Apríl 2011
AFRÍKUTRÚBOĐIĐ OG ATVINNUREKNDASAMTÖKIN

...Hugrenningatengsl urðu til þess að þetta kom upp í hugann þegar ég heyrði Samtök atvinnurekenda hóta því í dag að þeir myndu halda kauphækkunum frá launafólki ef ríkisstjórnin félli ekki frá áformum um að umbylta kvótakerfinu, ef hún ekki spýtti í við stóriðjuframkvæmdir, lækkaði skatta á fyrirtæki og viti menn - ef þjóðin felldi Icesave-samninginn!!! Ég vona að mér hafi misheyrst að verkalýðshreyfingin hafi tekið undir þessar hótanir.
Í mínum huga er þetta ekkert annað en tilræði við lýðræðið - og það sem meira er tilræði við launafólk. Að taka það í gíslingu með þessum hætti er nánast sama ofbeldið og ...
30. Mars 2011
„ŢETTA FÓLK"

Það er engu líkara en „þetta fólk" ætli að skipta um sjávarútvegskerfi á Íslandi! Hvaða fólk skyldi framkvæmdastjóri SA hafa verið að tala um í fréttum Sjónvarps í kvöld? Hann var að tala um Alþingi og ríkisstjórn Íslands. Sem framkvæmdastjóri Verslunarráðsins til langs tíma og síðan sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur Vilhjálmur Egilsson verið einn valdamesti maður í landinu um langt skeið. Það var hann á meðan flokksfélagar hans í Sjálfstæðisflokknum réðu á Alþingi og í Stjórnarráði Íslands. Á þeim tíma voru stjórnvöld samtökum atvinnurekenda þóknanaleg enda þeim leiðitöm. Nú talar Vihjálmur Egilsson sem maður hrakinn úr vistarverum sínum. Hann ávarpar hústökufólkið í Stjórnarráðinu: Hvað vill „þetta fólk" upp á...
11. Desember 2009
KRÖFTUGIR TRÚNAĐARMENN - LIFANDI VERKALÝĐSHREYFING!

...Verkalýðsstofnun án jarðtengingar er til lítils nýt. Lifandi verkalýðshreyfing getur hins vegar allt - nánast. En til að þetta gangi eftir þarf að gera allt sem hægt er til að treysta innviði hreyfingarinnar. Þar horfi ég ekki síst til trúnaðarmanna á vinnustað sem gegna lykilhlutverki við að gæta réttinda launamannsins gagnvart atvinnurekanda eða umboðsmanna hans. Einstök verkalýðsfélög hafa lagt mikla rækt við þetta starf að ónefndum Félagsmálaskóla Alþýðu sem sinnt hefur þessari fræðslu fyrir ASÍ og BSRB... Meðal annars af þessum sökum er ég þeirrar skoðunar að okkur beri nú sem aldrei fyrr að styrkja fræðslu trúnaðarmanna og stuðning við þá...
10. Desember 2009
FORSETA ASÍ SVARAĐ

...Við höfum margoft rætt þetta efni á opinberum og óopinberum vettvangi. Ég hef varað við því að smíða tvöfalt velferðarkerfi og viljað þess í stað efla almannaþjónustuna. Þótt markaðshyggjustjórnir undangenginna ára hafi vanrækt almannaþjónustuna skulum við ekki horfa fram hjá því sem þó hefur verið vel gert á þessu sviði og ættum við að sameinast um að þar verði gert enn betur. Hvernig væri að við gerðum það Gylfi? Ég vil vera í liði með verkalýðshreyfingunni - hef þar alið allan minn starfsaldur. En ég leyfi mér líka að gera kröfur til hennar þegar mér finnst hún fara út af sporinu...
2. Desember 2009
ASÍ LEIĐRÉTT
...Ég fagna því að ASÍ skuli setja fram þessa gagnrýni opinberlega. Það geri ég vegna þess að það gefur tilefni til umræðu. Því miður gerist það allt of oft að samið er um stórmál án félagslegrar umræðu. Það átti við um Starfsendurhæfingarsjóðinn. Skyndilega var hann orðinn að veruleika, okkur í öðrum samtökum sagt að þetta væri nokkuð sem ekki ætti við um okkar félagsfólk nema fram kæmu óskir um slíkt. Síðan líður tíminn og þá kemur í ljós að veruleikinn er annar. Þegar sköpuð hafa verið réttindi á stórum hluta vinnumarkaðar segir reynslan að aðrir eiga ekki annarra kosta völ en bjóða upp á samvarandi rétttindi eða fyrirkomulag fyrir sína félagsmenn. Annað áþekkt dæmi er...
17. Nóvember 2009
SFR 70 ÁRA!

...Sjaldan hefur það verið eins augljóst að launafólk þarf á kröftugri og lifandi verkalýðshreyfingu að halda sjálfs sín vegna; stjórnvöld þurfa á henni að halda sér til halds og trausts og þá ekki síst nú sem aðhaldsafli og mótvægi við frek fjármagnsöflin. Án sterkrar verkalýðshreyfingar, gagnrýninnar og róttækrar, munum við aldrei rétta út kútnum. Það ætlum við hins vegar að gera. Þess vegna er sterk verkalýðshreyfing þjóðarhagur. Megi SFR rísa undir væntingum okkar og óskum...
10. Nóvember 2009
STÖĐUGLEIKI?

...Er ég þar einkum að tala um Samtök atvinnulífsins. Atvinnurekendasamtökin hafa með beinum og óbeinum hætti haft í hótunum við ríkisstjórnina. Hótunin er ófriður á vinnumarkaði og byggir á því að hafa af láglaunafólki kjarabætur ef ekki er orðið við kröfum atvinnurekenda um að hlífa vildarvinum þeirra, fjármagnseigendum og stóriðjunni. Þetta eru þeir aðilar á Íslandi sem helst eru aflögufærir. Nei, frekar skal almennt launafólk skattlagt, skorið niður á heilbrigðisstofnunum og kjör öryrkja og aldraðra skert en að hrófla við þessum mannskap. Hvers virði er "stöðugleiki" um slíkt ástand? Í mínum huga er Stöðugleikasáttmáli sem byggir á félagslegu ranglæti verri en einskis virði. ... Ríkisstjórnin verður að hætta undanslætti gagnvart ...
29. Október 2009
SÖGUNNI HALDIĐ TIL HAGA

...Oft hefur verið sótt að þessum réttindum og hefur stundum munað litlu að þau væru skert stórlega. Alvarlegasta atlagan að þessu kerfi var gerð á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar. Þá gáfust margir upp. Flestir. Ekki Gunnar Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri SFR, síðar framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands. Hann stóð vaktina. Einn með storminn í fangið. Innan BHMR voru líka til einstaklingar vel vakandi. En það var Gunnar sem gerðist ...
25. Október 2009
SAMFÉLAGSVITUND/SJÓĐSVITUND OG EIN LÍTIL SPURNING

..... Í dag og í gær heyrum við síðan fulltrúa vinnumarkaðar krefjast þess að fá atvinnuleysistryggingasjóð yfir til sín eins og var fyrr á tíð......Ef ég verð veikur vil ég fara út á heilsugæslustöð og eiga um veikindi mín við minn lækni og síðan eftir atvikum fara á Reykjalund, Grensásdeild eða annað sem heilsugæslan ráðleggur mér. Þetta vil ég miklu frekar en fá Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA eða Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ eða fulltrúa þeirra í heimsókn. Ég vil hins vegar áfram geta sótt til Gylfa, Elínar Bjargar formanns BSRB, Sigurðar Bessa, formanns Eflingar og Árna Stefáns, formanns SFR, þurfi ég á að halda stuðningi gagnvart "kerfinu" og þá einnig til míns sjúkrasjóðs ef um einhverjar sérstakar .....
Frá lesendum
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara
4. Maí 2013
ATHYGLISVERĐ MÁLSTOFA
Guðjón Jensson
4. Maí 2013
ŢAKKIR
Ísak Pétur Lárusson
2. Maí 2013
STÖĐVAĐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍĐ!
Konráð Bragason
2. Maí 2013
NÚ SKRÍĐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ












