Líf og störf
Ég er fæddur í Reykjavík 17. júlí árið 1948. Foreldrar mínir eru Guðrún Ö. Stephensen, húsmóðir og Jónas B. Jónsson, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík.
Ég er giftur Valgerði Andrésdóttur. Hún er dóttir Margrétar Helgu Vilhjálmsdóttur, húsmóður og Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra. Valgerður er erfðafræðingur og starfar við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Við eigum þrjú börn, Andrés f. 14. júní 1974, Guðrúnu f. 17. mars 1979 og Margréti Helgu, f. 24. janúar 1981.
Að loknu grunnskólanámi í Melaskóla og Hagaskóla lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík. Á menntaskólaárunum lagði ég lykkju á leið mína því veturinn 1966-67 var ég við nám í Brentwood í Englandi. Stúdentsprófi lauk ég vorið 1969 og hélt til Edinborgar í Skotlandi þar sem ég lagði stund á sagnfræði og stjórnmálafræði sem ég lauk með MA Honours prófi 1974.
Á námsárum mínum lagði ég stund á margvísleg störf á sumrum og einn vetur (1971-1972) var ég kennari við Grunnskóla Reykjavíkur. Á árunum 1974-78 stundaði ég rannsóknir við Edinborgarháskóla og ýmis störf en gerðist síðan fréttamaður við Ríkisútvarpið vorið 1978. Nokkru síðar færði ég mig yfir á fréttastofu Sjónvarps og var þar fram á haust 1988 en tvö síðustu árin hafði ég verið fréttamaður Ríkisútvarpsins á Norðurlöndum með aðsetur í Kaupmannahöfn.
1988 var ég kjörinn formaður BSRB og hef ég gegnt formennsku í samtökunum síðan. Áður en ég var kosinn til að gegna formennsku í BSRB hafði ég komið talsvert að starfi í samtökunum, bæði átt sæti sem varamaður í stjórn en einnig hafði ég verið formaður eins aðildarfélags bandalagsins, Starfsmannafélags Sjónvarps, lengst af frá 1980 til 1988. Af öðrum störfum mínum má nefna að ég hef verið stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 1979.
Ég var kjörinn á þing árið 1995 fyrir Alþýðubandalag og óháða og síðan fyrir
Vinstrihreyfinguna grænt framboð árið 1999. Í aðdragandanum að stofnun Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, á fyrri hluta árs 1998, tók ég þátt í að stofna
Stefnu, félag vinstri manna. Að stofnum þess félags kom fjöldi fólks af vinstri væng stjórnmálanna og kvennahreyfingu staðráðið í að halda uppi hugsjónum og merki vinstri stjórnmála. Á fyrstu mánuðum lífdaga sinna stóð Stefna fyrir kröftugum málfundum um velferðarmál, umhverfismál og utanríkismál. Félagið er enn við góða heilsu þótt það hafi ekki verið mikið gefið fyrir sviðsljósið í seinni tíð enda þykir Stefnufélögum almennt VG farnast prýðilega að halda uppi fána vinstrimanna á opinberum vettvangi.
Á vegum verkalýðshreyfingar og stjórnmála gegni ég ýmsum trúnaðarstörfum. Þar má nefna stjórnarsetu í ETUC, Sambandi evrópskra verkalýðsfélaga, NFS, Sambandi norrænna verkalýðsfélaga, NTR, Sambandi opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, NOFS, Sambandi norrænna starfsmanna í almannaþjónustu og PSI, Heimssambandi launafólks í almannaþjónustu.
Á Alþingi hef ég frá 1999 verið þingflokksformaður VG og á nú sæti í Efnahagsnefnd og Félagsmálanefnd og er varamaður í Utanríkismálanefnd.

Með Margréti Helgu að lokinni fljótasiglingu í Skagafirði.
Áhugamálin tengjast fjölskyldu minni. Skemmtilegast þykir mér að vera samvistum við hana, bæði heima og heiman. Þá horfi ég bæði til minna allra nánustu og stórfjölskyldunnar. Mér þykir skemmtilegt að ferðast og ég nýt þess að koma á staði sem ég hef ekki heimsótt áður. Ég stunda hestamennsku með dóttur minni Guðrúnu en þó í alltof litlum mæli.
Ýmsar persónuupplýsingar um störf og hagi:
Tekjur
Fastar tekjur:
þingmennska, 520.000 kr.,
Engar aðrar tekjur.
Eignir
Íbúðarhúsnæði, heimilsibifreið, hlutabréf í Friðarhúsi að upphæð 10.000 kr.. Auk þessa á ég spildu í skipulögðu sumarbústaðahverfi í Minna Mosfelli í Grímsnesi.
Hlunnindi
Fæ greiddan símakostnað og áskrift dagblaða.
Hagsmunatengsl
Ég er formaður BSRB en tek ekki laun fyrir störf mín í þágu samtakanna. Fjórum sinnum frá 1995, er ég tók sæti á Alþingi, hef ég þegið laun frá BSRB í 2-3 vikur en þá jafnframt verið launalaus frá Alþingi. Þannig hef ég aldrei verið á tvöföldum launum.
Ég á sæti í stjórn BSRB. Fundir eru að jafnaði haldnir mánaðarlega og er þóknun tæpar 4 þús. kr. til stjórnarmanna. Fyrir nefndarstörf sem ég sinni á vettvangi BSRB eru engar greiðslur.
Ég er í stjórn Lifeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Þegar ég tók við ráðherraembætti vék ég tímabundið úr stjórninni og afsalaði umleið þóknun fyrir stjórnarsetu.
Ég er formaður Fjölskyldu og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ. Ólaunað.
Ég á sæti í stjórn HASLA, Hagrannsóknarstofnunar samtaka launafólks í almannaþjónustu. Ólaunað.
Ég sit í aðskiljanlegum nefndum og ráðum á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Þessi störf eru ólaunuð.
Sit ekki í launuðum nefndum á vegum ríkis og sveitarfélaga eða annarra aðila nú um stundir.
Maki: Valgerður Andrésdóttir, líffræðingur við Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara.
Eignir: Engar að undanskildu íbúðarhúsnæði
Frá lesendum
11. Mars 2010
VATN Á MYLLU ANDSTĆĐINGA?
Svala Jónsdóttir
10. Mars 2010
ŢEGAR ÍHALDIĐ HRÓSAR...
Árni Magnússon
9. Mars 2010
ER SAGAN AĐ ENDURTAKA SIG?
einn óháður kjósandi VG
9. Mars 2010
VILL LÁTA SYNDA MEĐ STRAUMNUM
Gunnar
8. Mars 2010
MUN STJÓRNIN LIFA?
...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson
8. Mars 2010
ERU PÓLITÍSK MARKMIĐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?
Hlynur Grímsson.
7. Mars 2010
ÓSKAĐ EFTIR SVARI
Viðar Magnússon
7. Mars 2010
TRÚARLEGT STEF?
Árni V.
6. Mars 2010
ŢJÓĐ, VALD OG ÁBYRGĐ
Þorkell Gunnarsson
6. Mars 2010
TRYGGVI ŢÓR KEMST EKKI
Þjóðólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
11. Mars 2010
Drífa Snćdal skrifar: ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR Í KVENFRELSI Á EINU ÁRI
19. Febrúar 2010
Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU
...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...












