MEÐ TÍU MILLJÓNIR Í AUGUNUM

Íslandsspil og RÚV ohf hafa sameinast um fjölskylduþátt á
laugardagskvöldum sem greinilega er hugsaður sem einskonar
kennsluþáttur í fjárhættuspili.
Án efa þykir þeim sem kosta þáttinn auk RÚV ohf - og þá horfi ég
til þeirra sem standa að Íslandsspilum, Rauða krossinum á Íslandi,
Slysavarnafélaginu Landsbjörg og SÁÁ - sig þarna hafa fundið ráð
til að æsa upp auragirndina þannig að þau sem háð eru spilafíkn
hlaupi út í næsta spilakassa.
Það er vissulega hagur þessara kassa-rekenda skoðað frá þröngum
eiginhagsmunum. En skyldi Rauða krossinum á Íslandi,
Slysavarnafélaginu Landsbjörg og SÁÁ þykja þetta vera samfélagslega
ábyrgt; þykir þeim þetta verðugt fjölskylduefni? Skyldi virkilega
enginn innanborðs í þessum stofnunum og samtökum hafa efasemdir um
að sæmandi sé að styrkja þetta efni?
Og hvað með RÚV? Er kominn upp sami mórall þar og var fyrir hrun,
þegar "sérfræðingar" voru daglega látnir spá í gróðavísitöluna í
fréttatímum og þulir tilkynntu ábúðarmiklir hvað hefði farið upp og
hvað niður í Kauphöllinni þann daginn. Tíu milljónir í augum hvers
manns.
Okkur stuðningsmönnum fyrrnefndra samtaka og stofnana er ekki
beinlínis gert auðvelt fyrir. Hvað þá þeim sem vilja veg RÚV sem
mestan. Sú stofnun telur sig greinilega geta boðið upp á hvað sem
er. Það held ég að sé misskilningur. Stjórnandinn, Þórhallur
Gunnarsson, hefur margoft sýnt hvers hann er megnugur sem góður
sjónvarpsmaður og þáttastjórnandi. Hvers vegna þetta hlutskipti nú?
Og hvers vegna þetta hlutskipti fyrir RÚV?