Samfélagsmál
30. Maí 2004
Ruslfæðisauglýsingar bannaðar í Bretlandi – prófmál í uppsiglingu?
Það er ágætt framtak hjá bresku stjórninni að vilja stemma stigu við matarvenjum sem eru þjóðinni sannanlega mjög skaðlegar. Þetta gæti hins vegar orðið skemmtilegt pólitískt prófmál. Bretar eiga að vísu ekki stjórnarskrá en einhvers staðar hefði verið sagt að íhlutun af þessu tagi í markaðinn bryti í bág við stjórnarskrá, eignarréttinn, jafnræði á markaði, meðalhóf og öll þessi hugtök sem ...27. Maí 2004
Markaðslögregla gegn íslensku lýðræði
Það er sjálfsagt að taka þessum gestum vel einsog öllum þeim sem sækja land okkar heim, sýna þeim Gullfoss og Geysi og þess vegna Bláa Lónið. Það þarf hins vegar að segja þeim kurteislega en ákveðið, að sjálfir ætli Íslendinggar að ákveða hvernig þeir reki sitt Ríkisútvarp og aðrar almannastofnanir í þessu landi. Rannóknarvinna þeirra á þessu sviði sé afþökkuð. Það er ekki þessara gestkomandi manna að “skera úr” um hvað er rétt og hvað rangt í starfsemi íslenska Ríkisútvarpsins og hvernig sú stofnun er fjármögnuð. EES - smningarnir sem við höfum undirgengist eru að sönnu takmarkandi á ýmsum sviðum. En við skulum ekki gleyma því, að ...21. Maí 2004
Ríkisstjórnin fær rauða spjaldið!
Mynd Stefán Karlsson Fréttablaðinu Á fjölmennum útifundi á Austurvelli sl. miðvikudag var ríkisstjórn Íslands sýnt rauða spjaldið. Í knattspyrnunni þýðir þetta brottvísun af velli. Nýjustu tilefnin eru að sjálfsögðu Fjölmiðlafrumvarpið og frumvarp um réttindaskerðingu hjá starfsmönnum ríkisins, en sem kunnugt er stendur til að auðvelda forstöðumönnum stofnana ríkisins að reka fólk skýringarlaust! Þetta á að gera þvert á vilja allra heildarsamtaka launafólks. Fundurinn á Austurvelli beindist gegn ólýðræðislegum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar en til stuðnings lýðræðinu.
21. Maí 2004
Hvers vegna við ekki getum samþykkt Fjölmiðlafrumvarpið
Fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar er vanreifað. Það krefst miklu meiri og dýpri umræðu og framar öllu þarf að ræða framtíðarskipan fjölmiðla heildstætt, m.a. með tilliti til þeirrar framtíðar sem menn ætla Ríkisútvarpinu, áður en ákvarðanir eru teknar um frekari skref. Andstaða mín við þetta frumvarp byggir á þessu. Hún byggir einnig á því að ég tel að hætta sé á því að frumvarpið sé alls ekki til þess fallið að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Þvert á móti tel ég hættu á hinu gagnstæða: Frumvarpið, ef af lögum verður, muni veikja þá fjölmiðla sem nú eru starfandi og draga þannig úr fjölbreytni.
7. Maí 2004
Er forsætisráðherra að ofsækja Baug?
Frá mínum sjónarhóli þarf hvorki Baugur né oddviti Sjálfstæðisflokksins á neinni meðaumkun að halda og fær hana ekki frá mér. Og vegna þess að spurt er um ofsóknir á hendur Davíð Oddssyni og stjórnarmeirihlutanum, vil ég segja að þessar spurningar eru framhjá marki. Forsætisráðherra er ekki að ofsækja Baug. Og Baugur er ekki að ofsækja forsætisráðherra. Davíð Oddsson og stjórnarmeirihlutinn eru hins vegar að ...
7. Maí 2004
Varað við einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar!
Einn merkasti fræðimaður samtímans á sviði heilbrigðismála, sænski prófessorinn Göran Dahlgren, hélt fyrirlestur í vikunni um kerfisbreytingar í heilbrigðismálum og framtíðarsýn á því sviði. Göran Dahlgren var stjórnandi í sænska heilbrigðismálaráðuneytinu og hefur verið ráðgjafi sænsku ríkisstjórnarinnar en einnig ríkisstjórna í þróunarríkjum í Asíu og Afríku. Hann hlaut norrænu Lýðheilsuverðlaunin árið 2003 fyrir afburðaþekkingu, efnistök og nýja sýn á viðfangsefnið. Dahlgren varar mjög eindregið við markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins og varar einnig við gjaldtöku úr vasa sjúklinga en hún muni leiða til aukinna byrða á þá sem síst skyldi.3. Maí 2004
Mikilvæg umræða um fjölmiðlafrumvarp
Í þjóðfélaginu hefur kviknað mikil umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Ég tel mjög mikilvægt að þessi umræða fái að dafna og þróast en verði ekki kæfð niður með því að keyra frumvarpið í gegnum þingið með offorsi. Helgi Guðmundsson , hinn eini sanni hágé, spyr í pistli hér á síðunni í dag hver sé afstaða þingflokks VG til frumvarpsins. Ólína beinir einnig áleitnum spurningum til okkar um afstöðu Framsóknar til málsins...
Frá lesendum
6. September 2010
AFTUR TIL MIÐALDA
Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson
aagnarsson
5. September 2010
ÆTLAR AÐ FYLGJAST MEÐ
Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi
Villi
5. September 2010
LÁTIÐ JÓN Í FRIÐI
Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
LOKSINS
Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver
kveðja,
Ver
4. September 2010
UM BIÐLAUN OG LÍFEYRISKJÖR
Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir
Edda Ögmundsdóttir
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA
Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUÐUR
Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA
Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson
Gísli Baldvinsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
13. Ágúst 2010
Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL
Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...
4. Ágúst 2010
Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM
...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...












