Samfélagsmál
18. Febrúar 2010
RÓBERT WESSMAN BOĐAR HEILBRIGT ÍSLAND

Róbert Wessman er frumkvöðull og drifkraftur að baki nýju einkavæðingarátaki í heilbrigðisgeiranum. Til stendur að reisa einkasjúkrahús á Suðurnesjum, fyrir 1000 sjúklinga með 300 störfum. Svo er að skilja að fjármögnun komi frá sjóði sem eigi mér og þér tilveru sína að þakka. (Nokkuð sem ég ætla að leyfa mér að grennslast nánar fyrir um því málið kemur mér - og okkur öllum - við sem skattgreiðandum í þessu landi).
Fram kom á fréttamannafundi Róberts Wessman þar sem hann kynnti áform sín að samstarf um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu hafi verið komið vel á veg þegar ég varð heilbrigðisráðherra í febrúar í fyrra. Þá hafi hins vegar allt farið á verri veg hvað einkavæðingaráformin áhrærir.
Þetta get ég staðfest að er rétt.
Vanhugsaðar viðskiptahugmyndir
Ég get líka staðfest að Róbert Wessman kom á minn fund að ræða slík áform. Enn get ég staðfest að ég var ekki sérstaklega áhugasamur um hugmyndir Róberts.
Í fyrsta lagi þótti mér þær um margt vanhugsaðar. þannig var lýst miklum ráðagerðum í tengslum við samstarf við erlenda aðila, samstarfssamningar sagðir á lokastigi um umfangsmiklar fjárfestingar í rannsóknum og rekstri (m.a. við Meyo sjúkrahúsið í Bandaríkjunum) án þess að sannfærandi útfærsla á viðskiptahugmyndinni lægi fyrir. Svo virtist sem aðkoma hins opinbera væri hugsuð sem eins konar hvati í atburðarás á vinnslustigi.
Þá þótti mér ekki ljóst hvernig hugmyndin var að haga samstarfi hins opinbera og einkafyrirtækis þegar fram liðu stundir.
Nóg komið af vanhugsaðri mannkynsfrelsun
Hér á landi hafa verið allskýrar markalínur á milli almannaþjónustu og einkareksturs. Annað hvort hafa sérfræðingar og aðrir starfsmenn verið á samningi við ríkið eða ekki. Í tengslum við nýja einkaspítala Róberts Wessmans og félaga er talað um að flytja inn sérfræðinga til landsins og jafnframt nýta innlenda starfskrafta. Í framhaldinu hljótum við að spyrja hvort ekki sé líklegt að íslenskir sjúklingar muni leita eftir þjónustu á hinum nýja einkaspítala og ætlast þá jafnframt til þess að hið opinbera greiði kostnaðinn. Munu sjálfstætt starfandi læknar vilja gera tvennt í senn, starfa á einkaspítala en jafnframt fá greitt frá Sjúkratryggingum? Hér þarf að spyrja - og svara af raunsæi og reyna að sjá fyrir hvaða þrýstingur kemur til með að verða uppi þegar einkavæðing ryður sér til rúms í heilbrigðiskerfinu.

Róbert ásamt hugsanlegum framtíðarkúnnum sem allir eru búsettir erlendis, góðvinunum Hannesi Smárasyni, Björgólfi Thor og Hreiðari Má.
Frá einkastofu til stórfyrirtækis
Sjálfstætt starfandi læknar þurfa að hyggja að sínum hag. Það eru ekki til óendanlegir sjóðir. Gleypi ný einkarekin sjúkrahús mikla fjármuni verður minna til skiptanna fyrir hinn almenna praktiserandi mann. Hinn einkavæddi veruleiki í heilbrigðisgeiranum verður ekki sjálfstæður stofueigandi, einsog tíðkast hefur hér á landi, heldur bisnissfyrirtæki sem ætlar eigendum sínum drjúgan arð.
Er það fyrirheitna landið. Nýtt heilbrigt Ísland? Hugsum fyrst. Framkvæmum svo. Það er nóg af því komið að hafa þetta omvent einsog danskurinn segir.
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓŢURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












