Stjórnmál
29. Ágúst 2010
ÓVINIR RÍKISINS?
Undrandi varð ég á ummælum Ólafar Nordal, varaformanns Sjáflstæðisflokksins, í hádegisfréttum RÚV í gær, þar sem hún hélt því fram að ágreiningur sem upp hefði komið innan stjórnarliðsins á Alþingi hefði "skaðað hagsmuni íslensku þjóðarinnar"! Hvað á varaformaður Sjálfstæðisflokksins við, Icesave, Magma eða ESB? Eða er einfaldlega að taka sig upp gamalt mein í Sjálfstæðisflokknum, gömul þrá eftir einni skoðun: Skoðun valdsins, "Réttu skoðuninni"? Þessi tími er liðinn Ólöf. Hann á að vera liðinn. Óvinir ríkisins hétu þau ...
25. Ágúst 2010
JÓN BJARNASON ER EKKI EINN!

...Þegar það síðan gerist að viðræðuferlið verður að aðlögunarferli - að því er séð verður - og boðið er upp á fjárveitingar til að smyrja ferlið sem best, þá spyrnir Jón Bjarnason við fótum enda er það í hans ráðuneytum sem mestu kröfurnar eru reistar. Þetta er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt og nokkuð sem ríkisstjórnin mun án efa taka til skoðunar af fullri alvöru. Þá er hitt ljóst að á nákvæmlega sama hátt og stuðningsmenn stjórnarinnar eru frjálsir að því að tjá Evrópusambandinu ást sína, þá eru aðrir frjálsir að hafa uppi efasemdir um slíkt ástarsamband. Rétt er að hafa í huga að síðarnefndi hópurinn á hljómgrunn með stórum hluta þjóðarinnar - að öllum líkindum meirihlutanum eins og staðan er nú! Læt ég þá liggja á milli hluta að...
7. Ágúst 2010
VIRKISTURN Í NORĐRI?
...Við sem erum andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið erum iðulega sökuð um einangrunarstefnu og jafnvel þjóðrembu. Í mínum huga er ekkert fjær sanni. Hvað einangrunarstefnuna áhrærir tel ég einmitt vafasamt að einangra Ísland innan múra Evrópusambandsins. Við eigum að staðsetja okkur sem sjálfstætt smáríki, sem nýtur verndar og virðingar heimsins alls. Af þessari sýn okkar hafa ráðandi fjármálaöfl innan Evrópusambandsins áhyggjur...
29. Júlí 2010
STYRMIR OG FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS

Í bréfi til síðunnar vekur Ólína athygli á grein eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrum Morgunblaðsritstjóra sem birtist í Sunnudags-Mogga um síðustu helgi undir fyrirsögninni Magmadeilan snýst um grundvallaratriði. Ólína tengir umfjöllun Styrmis uppgjöri hans við liðinn tíma og beinir þeirri spurningu til mín hvort í viðhorfum hans kunni að leynast vegvísir til uppgjörs í flokkakerfinu sem og „í siðferði atvinnulífsins." Þessu er til að svara að ég tel...
23. Júlí 2010
KRÖFTUGT FÓLK

... Í dag birtist skýr og skelegg grein eftir Jón Þórisson, arkitekt og aðstoðarmann Evu Joly, í Fréttablaðinu sem ég hvet alla til að lesa. Hann er í hópi fólks sem gengið hefur fram fyrir skjöldu í baráttu fyrir samfélagslegu eignarhaldi á orkuiðnaðinum og ber að þakka honum, aðkomu okkar ástsælu Bjarkar, Oddnýjar Eir Ævarsdóttur ber einnig að þakka og margra annarra að undanförnu. Það er ómetanlegt fyrir samfélagið að eiga þetta kröftuga fólk að og mætti nefna mörg fleiri nöfn, svo sem Láru Hönnu Einardóttur sem bloggar reglulega á Eyjuna og Sigrúnu Davíðsdóttur sem hefur verið með frábæra pistla í RÚV. Áfram mætti telja. Að vísu ekkert mjög lengi. Þeir eru nefnilega ekki óteljandi fréttamennirnir sem...
9. Júlí 2010
HVERS VEGNA EKKI FYRSTA FRÉTT?

Í fjölmiðlum í dag eru fréttir af svikamálum gærdagsins. Kyrrsetning eigna og málaferli. Vissulega fréttnæmir atburðir. Svikamál samtímans eiga nú sem fyrr erfitt uppdráttar í fjölmiðlum. Sagt er frá klofningi í nefnd sem fjallar um lögmæti þess að erlent fyrirtæki, Magma Energy Sweden, kaupi þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins og öðlist ráðstöfunarrétt á orku í iðrum jarðar í heilum landshluta. Hvers vegna... Vefmiðillinn eyjan.is státar af frábærum pistlum Láru Hönnu Einarsdóttur. Þar er þessu máli gerð frábær skil, m.a. rannsóknarvinnu Teits Atlasonar...Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG hefur aldrei látið deigan síga í þessari baráttu og birti hann í gær grein hér á síðunni um þetta efni þar sem hann beinir spurningum til ríkisstjórnarinnar...
20. Júní 2010
ER SAMSTJÓRN ALLRA FLOKKA ĆSKILEG?
...Þjóðstjórnarfyrirkomulag - sem er háfleygt orð yfir samstjórn allra flokka - breytir því hins vegar ekki að um hugsjónir og stefnumál eru skiptar skoðanir á milli stjórnmálaflokka og hlýtur afstaða til grundvallarmála að skipta sköpum þegar ríkisstjórnir eru myndaðar. Þess vegna verður að spyrja Össur í framhaldinu: Hvað er það sem samstjórn allra flokka myndi gera sem þessi ríkisstjórn gæti ekki gert?...
30. Maí 2010
KRAFA UM BREYTT VINNUBRÖGĐ Í STJÓRNMÁLUM

...Er það kannski einmitt þetta, skorturinn á auðmýkt og afneitun á að horfast í augu við veruleikann, sem kjósendur Besta flokksins eru að gera uppreisn gegn? Að hluta til held ég að svo sé. Að fólki finnist að veruleikinn sé eitt, orð stjórnmálamanna eitthvað allt annað. Uppreisnin er þannig ekki bara gegn „hrunflokkunum", leiðsögumönnum þjóðarinnar út í efnahagsógöngurnar, heldur líka veruleikafirringu stjórnmálanna almennt; gegn tungutaki ósanninda, auglýsingaskrums um að stjórnmálamenn horfi ævinlega til almannahags, viðhafi opin og lýðræðisleg vinnubrögð þegar allir vita að allt annað er uppi á teningnum. Fólk sér að þrátt fyrir hrun og hunskýrslur er áfram meira að segja...
28. Maí 2010
ŢAĐ ER EKKI BÚIĐ AĐ KJÓSA Í REYKJAVÍK

Staðreyndin er sú að borgarfulltrúar VG í Reykjavík hafa staðið sig vel allar götur frá því flokkurinn bauð fyrst fram í borginni. Það verður því ekki sagt að sanngirni réði ef fram fer sem nú horfir samkvæmt skoðanakönnunum, að flokkurinn fengi aðeins einn fulltrúa kjörinn. VG hefði átt skilið að fá fjóra eða fimm fulltrúa - að minnsta kosti!
Samkvæmt skoðanakönnunum er Þorleifur Gunnlaugsson, annar maður á framboðslista VG úti, nær ekki kjöri. Það væri mikið slys. Þorleifur hefur verið einn öflugasti baráttumaður fyrir efnalítið fólk í borginni, vakinn og sofinn yfir hagsmunum þess, auk þess sem hann hefur ...
28. Maí 2010
KRAFTUR Í KRAGANUM

Á kosningaskrifstofum VG í Kraganum hefur verið meira líf en í flestum kosningum fram til þessa... það skiptir máli hvort til áhrifa eru kosnir stjórnmálamenn sem leggja áherslu á atvinnu fyrir alla, jöfnuð og velferð eða þeir sem fyrst og fremst þjóna fjármagninu og handhöfum þess. Frasar? Nei, raunveruleiki sem nýlega var fjallað um í rannsóknarskýrslu Alþingis. það má læra af henni. Það má hafa hana í huga við kjörborðið á morgun.
Frá lesendum
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝĐRĆĐIĐ LEYSIR ALLAN VANDA
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUĐUR
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFĐI ÁTT AĐ SPYRJA ŢJÓĐINA
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Gísli Baldvinsson
25. Ágúst 2010
ORKURÍKIĐ
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson
25. Ágúst 2010
ÓŢOLANDI ÁRÁSIR
ElleE
23. Ágúst 2010
UTANSTEFNU-PÓLITÍK
Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a
22. Ágúst 2010
TAKK ATTAC
Sunna Sara
22. Ágúst 2010
GJALDSKRÁR-HĆKKUN ER EKKI DJÓK
Jóna Guðrún












