Stjórnmál Nóvember 2003
Um helgina hélt Vinstrihreyfingin grænt framboð einstaklega vel
heppnaðan landsfund. Ályktað var um aðskiljanleg efni og var mikil
áhersla á velferðarmál, umhverfismál og alþjóðamál. Umræða um
jafnrétti kynjanna setti einnig mjög svip á fundinn. Hann var góður
að mjög mörgu leyti. Eftir hann liggur afrakstur mikillar
stefnumótunarvinnu og frá fundinum komu mjög jákvæð skilaboð út í
þjóðfélagið. Þessi skilaboð um baráttuglaðan vinstrisinnaðan
félagshyggjuflokk voru mörgum mjög kærkomin í kjölfar ...
Lesa meira
Birtist í Morgunblaðinu 08.11.2003
Verslunarráðið og markaðssinnarnir í Sjálfstæðisflokknum hafa fram
undir þetta sagt að viðbótarfjármagn muni koma inn í þjónustuna í
formi notendagjalda. Á fyrsta kjörtímabili Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks var þetta líka boðskapurinn. En hann féll í grýtta
jörð hjá þjóðinni. Þá varð kúvending hjá öllum þessum aðilum. Nú
var sagt: Allir eiga að hafa jafnan aðgang, ríkið á einfaldlega að
borga brúsann. Það eina sem við viljum er að einkafyrirtæki fái að
annast framkvæmdina - og væntanlega hirða gróðann. Mörgum brá
óneitanlega í brún þegar þessi boðskapur kom síðan frá nýafstöðnu
þingi Samfylkingarinnar, fyrst í ræðu formanns og síðan í sölum
Alþingis...
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Landsmenn fagna nú lokast sárið
því loksins kláraðist ótuktar árið
sprautu víst fáum
bættan hag sjáum
og fljótlega líður frá Cóvíd fárið.
Ég óska öllum árið gott
eftir óþverra pestina
Kófinu nú komum á brott
og kjósum svo í restina.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Bönkum ræna bannsettu,
bófum auðinn fólu.
Ráðherra festa á rakettu,
reikna braut um sólu.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum