Fara í efni

RÁÐLEGGINGAR UVG


Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling og sent hann með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á NATÓ-fundinn í Rúmeníu þar sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttur og Geir H. Haarde eru nú. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu. Sem kunnugt er létu þau Geir og Ingibjörg Sólrún skattborgarann leigja undir sig og föruneyti sitt einkaþotu til að geta ferðast með stæl til NATO-fundarins. Með í för voru fulltrúar fjölmiðla til að geta þjónað ráðherrunum. Þjóðinni hefur blöskrað flottræfislháttur ríkisstjórnarparsins og segir Auður Lilja Erlengsdóttir formaður UVG á heimasíðu Ungra Vinstri-grænna: „Í þeim óróleika sem nú er uppi í samfélaginu þurfum við öll að standa saman...Þess vegna ákváðum við að senda ráðherrum þjóðarinnar leiðbeiningar um hvernig hægt er að komast heim frá NATO-fundinum í Rúmeníu án þess að nota einkaþotu. Eftir yfirlýsingar ráðherra undanfarna daga vorum við farin að halda að ekki væri hægt að komast heim með almenningsflugi, en það reyndist sem betur fer rangt."
Sjá hér: http://www.vinstri.is/default.asp?news_id=7251