HVIMLEIÐAR RADDIR FORTÍÐAR
Birtist í Morgunblaðinu 25.06.11
Ég hef
orðið var við að margir furða sig á framgöngu forsvarsmanna Samtaka
atvinnulífsins í tengslum við kjarasamninga. Í stað uppbyggilegs
samtals inn í samfélagið hefur málflutningurinn einkennst af
gífuryrðum, svikabrigslum og ásökunum af pólitískum toga um
»stjórnleysi« og »forystuleysi« ríkisstjórnarinnar. Alveg sama hvað
gert er, alltaf er verið að svíkja þá Vilmund Jósepsson og Vilhjálm
Egilsson. Þessum neikvæða tón úr ranni SA höfum við ekki átt að
venjast í langan tíma og alls ekki nú síðustu árin, í aðdraganda
hrunsins þegar Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráðið lágu á spena
stjórnvalda, hvöttu þau til dáða og fengu nær undantekningalaust
sínu framgengt. Einhvers staðar held ég að ég hafi séð að
Viðskiptaráð hafi beðist opinberlega afsökunar á framferði sínu en
slíku hefur ekki verið til að að dreifa af hendi Samtaka
atvinnulífsins.
Stóra svikabrigslamálið nú í sumarbyrjun er að ég sem ráðherra
samgöngumála, skuli ekki hafa viljað setja á vegatolla til að
ráðast í sérstakar flýtiframkvæmdir í tilteknum afmörkuðum
stórframkvæmdum en þess í stað viljað halda mig við ódýrari
lausnir, sem þó skapa fleira fólki vinnu. "Þú hefur lagaheimildina,
þú getur sett á tolla," var mér sagt, og skipti þá engu þótt ég
benti á andstöðu samfélagsins, tugþúsundir undirskrifta, andstöðu
sveitarstjórnarmanna og þingmanna að ógleymdum atvinnurekendum, sem
tugum saman hafa skrifað mér og kvartað yfir forsvarsmönnum sínum.
Þrátt fyrir þetta leyfði formaður SA sér að segja að sú staðreynd
að ég lyti ekki boðvaldi sýndi fram á "getuleysi
ríkisstjórnarinnar" og "forystuleysi" að "láta einn mann stoppa
svona mikilvægt mál..." ...framkvæmdir "upp á tugi
milljarða...".
Þrátt fyrir skýran þjóðarviljann leyfa menn sér að segja upp í opið
geðið á þeim tugum þúsunda sem hafa látið vilja sinn í ljósi að það
sé einn maður, undirritaður, sem sé að "bregðast" og "svíkja" og nú
síðast krefjast blessaðir mennirnir þess í bræði sinni að mér verði
vikið úr ríkisstjórninni: "Verkstjórar stjórnarsamstarfsins hljóta
að bregðast við og sjá til þess að innanríkisráðherra snúi af villu
síns vegar. Takist það ekki er vart annar kostur en að fela öðrum
að fara með samgöngumálin í ríkisstjórninni."
Hvernig væri nú að Samtök atvinnulífsins snéru sér að því í
framtíðinni að semja um kaup og kjör, vinnutíma og réttindi
launafólks og hættu að halda almennu launafólki í gíslingu með það
að markmiði að ná fram þröngum sérhagsmunum og þá einnig að sveigja
þjóðfélagið á gamalkunna braut út í frjálshyggjufenið.
Þessi vinnubrögð og sú vanvirða við lýðræðið sem þau endurspegla
mun sem betur fer brátt heyra til liðinni tíð.
Þetta er fyrst og fremst hvimleitt en ekki til að gera sér mikla
rellu út af. Stóryrtar hótanir og mikið loft, en innistæðan engin.
Það finn ég á þeim viðbrögðum sem ég verð var við þessa dagana,
ekkert síður frá félagsmönnum þeirra Vilmundar og Vilhjálms en frá
launafólki sem blöskrar yfirgangur þeirra.