Fara í efni

1. MAÍ. 2026

Verkalýðsdegi við fögnum saman/Öll förum í göngur höfum gaman/samstöðu fáum/saman náum/um betra líf hagsæld og framann ...
BARÁTTA FYRIR JÖFNUÐI OG FRIÐI - GEGN ARÐRÁNI OG OFBELDI

BARÁTTA FYRIR JÖFNUÐI OG FRIÐI - GEGN ARÐRÁNI OG OFBELDI

... Gegn þessari þróun þarf íslensk verkalýðshreyfing að beita sér með því að tala skýru máli réttlætis frá þeirri stöðu sem þarf að tryggja Íslandi: Herlaust land, utan hernaðarbandalagsins NATÓ og Evrópusambands auðvaldsins ...
ALFRED DE ZAYAS: THE ANTIOGONE MOMENT

ALFRED DE ZAYAS: THE ANTIOGONE MOMENT

The Antigone Moment: Denouncing the Inhumanity of EU and US Sanctions is the full title of a thought provoking article by Alfred de Zayas, prolific analyst and writer of world renown ... Slóðin hér að neðan vísar til frábærrar greinar eftir Alfred de Zayas um einhliða refsiaðgerðir BNA og ESB og uppgang fasískrar hugmyndafræði í Evrópu ...
FÖRUM AÐ DÆMI G.G.G!

FÖRUM AÐ DÆMI G.G.G!

Ég var spurður að því í dag hvað væri til bragðs að taka gegn hervæðingarfárinu sem nú ríður yfir heiminn. Spurningin hafði reyndar lengi leitað á mig. En svarið var mér nú orðið augljóst og að bragði sagði ég að við ættum að fara að dæmi Guðmundu G. Guðmundsdóttur ... Grein sína byggir Guðmunda á rannsókarstarfi og vísar hún ítarlega í heimildir. Upp í hugann kemur hve mjög grasrótarstarf Guðrúnar Agnarsdóttur læknis, síðar alþingismanns, hreif mig þegar hún tók á sinn hógværa en einarða hátt að ...
SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN

SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN

Fullur titill á þessum nýjasta pistli Söruh Glynn er Turkey´s hold on Kurdish progress: Last week in Kurdistan. Hér fjallar hún um stöðu Kúrda í Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran en í öllum þessum löndum er nú þrengt að Kúrdum með stuðningi vestrænna þjóða - sums staðar að undirlagi þeirra. Undantekningin er Íran því þar er það klerkaveldið sem sér um ofbeldið innan sinna landamæra og utan reyndar einnig því stöðugar árásir er gerðar á búðir landflótta íranskra Kúrda í Írak.

Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni

... Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma. Umræða um ESB hér á landi þarf að taka mið af þessari þróun. Við erum þegar í hernaðarbandalaginu NATÓ - því miður - og þurfum ekki að ganga til liðs við þjóðir sem eru að hervæðast og eru tilbúnar í stríð ...
EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT

EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT

Í skýrslu Michael O’Flaherty, talsmanns Evrópuráðsins í mannréttindamálum (Human Rights Commissioner), sem birt var í Strasborg 15. apríl síðastliðinn, segir að verulega sé nú þrengt að tjáningarfrelsi í Þýsklandi einkum tjáningarfrelsi þeirra sem gagnrýna Ísraelsríki vegna stríðsreksturs á Gaza. Ekki sé nóg með að gagnrýnendur séu beinlínis sóttir til saka, heldur eru fundir bannaðir og ... See reoport ...
LEIÐTOGAR Í ÁFALLI

LEIÐTOGAR Í ÁFALLI

Fregnir frá Washington herma að maður með skotvopn hafi ætlað að ráða Donald Trump Bandaríkjaforseta af dögum. Samherjar Donalds segjast vera í áfalli. Macron Frakklandsforseti brást snarlega og hét stuðningi við fórnarlambið sem næstum varð. Starmer, forsætisráðherra Bretlands lýsti því strax yfir að vegið væri að tjáningarfrelsinu og svipuð skilaboð berast frá fjölmörgum handhöfum „vestrænna gilda“ í Brussel ... Sami Trump og sömu leiðtogar
ÁHUGAVERÐUR FUNDUR Á AKUREYRI UM ESB OG SJÁVARÚTVEG

ÁHUGAVERÐUR FUNDUR Á AKUREYRI UM ESB OG SJÁVARÚTVEG

Samtökin Til vinstri við ESB standa fyrir áhugaverðum fundi á Akureyri á laugardag um Evrópusambandið og sjávarútveg. Enda þótt þessi samtök sem kenna sig við vinstri pólitík standi að fundinum koma frummælendur víðar að en frá vinstri enda varðar framtíð sjávarútvegs á Íslandi ladsmenn alla og mikilvægt að fólk hvar í flokki sem það stendur skilji hvað það þýðir í raun að afhenda Evrópusambandinu forræði yfir sjávarauðlindinni ...

STRÍÐIÐ Í BÍÓ

Snemma í apríl árið 2026 horfði ég á kvikmyndina Sound of Falling. Í mars sama ár sá ég Amrum og Jojo Rabbit sá ég nokkrum árum fyrr. Þessar ólíku en afar áhrifamiklu kvikmyndir eiga það ekki aðeins sammerkt að hafa verið sýndar í einu besta kvikmyndahúsi Evrópu, Bíó Paradís, heldur fjalla þær um lífið í skugga stríðs ...