Fara í efni

ÞURFUM Á ÞORLEIFI AÐ HALDA!

Þorleif í borgarstjórn
Þorleif í borgarstjórn

Fyrir VG er mikill missir að Þorleifi Gunnlaugssyni , varaborgarfulltrúa, en sem kunnugt er hefur hann nú tekið að sér forystuhlutverk hjá Dögun og mun skipa efsta sæti lista þess framboðs í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Það framboð er byrjað að mælast en lítið enn sem komið er enda kynning af skornum skammti  og í sumum fjölmiðlum engin!  Ekki einu sinni frétt.
Þetta minnir mig á fyrri daga þegar VG var að verða til og gömul samtrygging um óbreytt ástand birtist í beinni og óbeinni þöggun gagnvart nýjabruminu.  

Maður jafnaðar og lýðræðis

Ástæðan fyrri því að eftirsjá er að Þorleifi  Gunnlaugssyni fyrir  flokk sem vill kenna sig við félagshyggju, og þeim mun meiri fengur fyrir Dögun, er sú að enginn maður í borgarpólitíkinni á undanförnum árum hefur verið ötulli en hann að tala máli þess fólks sem er tekjulítið og á undir högg að sækja í félagslegu tilliti. Það er helst nú undir kosningar að værukærara fólk er að ranka við sér. Þorleifur Gunnlaugsson hefur hins vegar haldið þessum málstað á loft óháð því hvort kosningar er á næsta leiti eða langt undan. Hann hefur verið  óþreytandi að taka uppi málstað útigangsmanna í Reykjavík og berjast fyrir bættu hlutskipti þeirra. Þá þekki ég það vel hve Þorleifur hefur reynst ötull baráttumaður fyrir úrbótum sem snúa að lýðréttindum almennt og nefni ég þar sérstaklega baráttu hans fyrir rafrænu lýðræði.

Rödd sem þarf að hljóma!

Mér finnst ástæða til þess að félagslega þenkjandi fólk sem nú horfir til þeirra framboða sem í boði eru á á þeim væng stjórnmálanna sem vill kenna sig við félagshyggju að gleyma ekki Dögun með Þorleif Gunnlaugsson í broddi fylkingar. Sjálfum fyndist mér afleitt að missa hann úr borgarpólitíkinni og fá í staðinn meira af Pírötum, Bjartri framtíð, Framsókn  eða Samfylkingu svo nefndir séu flokkar sem stundum vilja máta sig við félagsleg sjónarmið.  Með brotthvarfi Þorleifs Gunnlaugssonar úr borgarpóltíkinni myndi þagna rödd sem hljómað hefur í sölum Ráðhússins og nefndastarfi þar, rödd sem ekki má þagna.