Stjórnmál
3. Febrúar 2010
SJÁLFSTĆĐISFLOKKURINN FORGANGSRAĐAR

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti í Kastljós Sjónvarpsins í kvöld. Margt var skrafað. En þar kom að spurt var um forgangsröðun Sjálfstæðismanna. Hvað myndir þú gera, spurði Helgi Seljan Kastljósmaður, ef þú yrðir forsætisráðherra. Bjarni sagði að nauðsynlegt væri að byggja á víðtækri sátt um þá stefnu sem fylgja ætti. Sættir yrðu að takast við hagsmunaðila. Þetta sagði formaðurinn, eða á þessa leið.
Nú beið ég spenntur, skyldi hann telja upp hagsmunaaðilana sem tala þyrfti við, kannski byrja á því að nefna Öryrkjabandalagið, svo Hagsmunasamtök heimilanna, BSRB, Náttúruverndarsamtökin...
Bannað að anda á kvótakerfið
Nei, fyrstir inná samráðspallinn hjá Bjarna Benediktssyni átti að vera Landssamband útvegsmanna! Ekki orðaði hann þetta þannig - nefndi LÍÚ ekki einu sinni á nafn - heldur sagði að falla yrði frá öllum áformum um að hagga við kvótakerfinu. Með öðrum orðum, varnir fyrir kvótakerfið ætti að setja í forgang! Þetta kemur okkur sem sitjum á Alþingi ekki á óvart. Allt það sem á einhvern hátt raskar kvótakerfinu æsir upp eitthvað sem velviljaðir menn myndu eflaust vilja kalla „réttlætiskennd" sjálfstæðismanna, aðrir myndu kalla þetta svæsna hagsmunagæslu fyrir aðila, sem komist hafa yfir eignarhald á náttúruauðlindum.
Gleymum ekki gærdeginum
Nú er það svo að mörg okkar telja það vera mikilvægustu hagsmuni þjóðarinnar til langs tíma að tryggja eignarhald hennar á auðlindum, þar með sjávarauðlindinni. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins minnti á hvað það þýddi að fá flokk hans nú inn í Stjórnarráð Íslands. Hefur hann ekki gert nógan óskunda þar á liðnum árum? Vilja menn endurtaka leikinn? Fyrst kvótinn, tryggja framhald á lénsskipulagi í sjávarútvegi, svo málmbræðslur og ennþá fleiri málmbræðslur, síðan einkavæðing og ennþá meiri einkavæðing, þá skattkerfi fyrir efnafólk, sjúklingagjöld... Þetta var bara í gær. Svona morgundag viljum við ekki!
Frá lesendum
9. Mars 2010
ER SAGAN AĐ ENDURTAKA SIG?
einn óháður kjósandi VG
9. Mars 2010
VILL LÁTA SYNDA MEĐ STRAUMNUM
Gunnar
8. Mars 2010
MUN STJÓRNIN LIFA?
...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson
8. Mars 2010
ERU PÓLITÍSK MARKMIĐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?
Hlynur Grímsson.
7. Mars 2010
ÓSKAĐ EFTIR SVARI
Viðar Magnússon
7. Mars 2010
TRÚARLEGT STEF?
Árni V.
6. Mars 2010
ŢJÓĐ, VALD OG ÁBYRGĐ
Þorkell Gunnarsson
6. Mars 2010
TRYGGVI ŢÓR KEMST EKKI
Þjóðólfur
6. Mars 2010
FRÉTTIR AF FORINGJUNUM
Það hefur gengið misjafnlega hjá leiðtogum þjóðarinnar að kjósa í dag.. Í morgun handleggsbrotnaði Þráinn Bertelsson á kjörstað þegar hann datt um fávita. Þáði hann aðstoð Birgittu Jónsdóttur við kosninguna og gekk vel að sögn Þórs Saari sem varð fyrir því óhappi að festa hálstauið ofan í kjörkassanum...
Þjóðólfur
6. Mars 2010
VIRKJUM LÝĐRĆĐIĐ
Pétur Örn Björnsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
19. Febrúar 2010
Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU
...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...












