Stjórnmál
2. Mars 2010
LEYFUM JÓHANNI AĐ BORGA

Jóhann Hauksson, fréttamaður, hefur skrifað meira en flestir menn til stuðnings Icesave samningum og alltaf stutt af miklum móð þá niðurstöðu sem legið hefur fyrir hverju sinni.
Hann studdi Icesave samniginn eins og hann var lagður fyrir Alþingi í byrjun júní, síðan aftur í ágúst og loks í desember. Svo var á Jóhanni að skilja að það nálgaðist skemmdarstarfsemi að setja fyrirvara við samninginn eins og gert var áður en yfir lauk í ágústlok. Þegar Bretar og Hollendingar féllust ekki á þá fyrirvara og Alþingi tók að nýju til við málið, reis Jóhann Hauksson upp til að verja lakari útgáfuna og nú þegar í sjónmáli er betri kostur en nokkru sinni fer hann hamförum.
Í fyrsta lagi fer hann mikinn gegn þjóðaratkvæðagreiðslu, jafnvel þótt sá ferill hafi orðið til að bæta stöðu okkar. Við sem leyfum okkur að hvetja til þátttöku og afgerandi höfnunar á samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag til að sýna viðsemjendum okkar fram á samstöðu þjóðarinnar erum sökuð um að stjórnast af annarlegum pólitískum hvötum .
Í öðru lagi reynir hann að gera lítið úr þeim ávinningi sem orðið hefur með töfinni á Icesave og kemur fram í miklu minni greiðslubyrði, að því ógleymdu að bæði ríkisstjórn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa endurskoðað afstöðu sína til gjaldeyrisforðans, vilja nú taka miklu minni lán en áður með gríðarlegum sparnaði í vaxtakostnaði í erlendum gjaldmiðli.
Öll skrif sín réttlætir Jóhann Hauksson meira og minna með því að hann sé að verja vinstri stjórn. Í mínum huga hafa fáir menn lagt eins mikið af mörkum og hann í þá veru að spilla samstarfi vinstri manna með því að túlka jafnan málefnalegan ágreining þeirra í milli á versta veg og blása hann upp í sundurlyndistali .
Ef Jóhanni Haukssyni líkar það illa að ná greiðslubyrðinni af Icesave niður, legg ég til að fundin verði leið til þess að hann fái að borga í samræmi við þær óskir sínar.
Ný skrif JH: http://www.dv.is/blogg/johann-hauksson/2010/3/2/ogmundur-stydur-hadegismoalinuna/
Morgunútvarp Rásar 2, 2. mars http://dagskra.ruv.is/ras2/4520820/2010/03/02/:
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓŢURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












