Umheimur
2. Ágúst 2010
VATNIĐ OG SŢ: MIKILVĆG TÍMAMÓT

Skýringar eru misvísandi á því hvers vegna mörg ríki, þar á meðal Ísland, hafi setið hjá við atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, um að tryggja vatn sem mannréttindi....Maude Barlow, hin þekkta kanadíska baráttukona, sem m.a. hefur gegnt ráðgjafastörfum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á sviði þessa málaflokks, segir samþykkt tillögunnar vera mikilvæg tímamót fyrir alla þá sem vilja réttlæti á þessu sviði ...Maude Barlow telur að ágreiningurinn sem fram kom við atkvæðagreiðsluna í eigi rót að rekja til mismunandi grundvallarafstöðu, annars vegar á afstöðu þeirra þjóða sem vilja telja vatn til almannagæða og mannréttinda og svo hinna sem vilja markaðsvæða vatnið...Þessi ólíka grundvallarafstaða hafi síðan ...
17. Febrúar 2010
FRÓĐLEGUR FUNDUR UM VENEZUELA

Í morgun áttum við Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB stórfróðlegan fund með José Sojo, sendiherra Venezuela á Íslandi með (aðsetur í Osló), í höfuðstöðvum bandalagsins. Það er óneitanlega önnur mynd sem dregin er upp af gangi mála í þessu umtalaðasta ríki Suður- Ameríku en gert er að jafnaði í stærstu fjölmiðlum heims. Hvers vegna er Venezuela umtalað? Jú, vegna harðdrægni Hugos Chavez, forseta og stjórnar hans, í garð fjölþjóða-auðvaldsins sem fyrir stjórnartíð forsetans var að verða talsvert ágengt í að éta upp auðlindir landsmanna. Olíuiðnaðurinn í Venezuela hafði verið í þjóðareign frá miðjum áttunda áratugnum en í ...
29. Nóvember 2009
ŢAĐ ER HĆGT AĐ TRYGGJA MANNRÉTTINDI Í PALESTÍNU!

Erindi flutt í Norræna húsinu á samstöðudegi SÞ með palestínsku þjóðinni
...Hvernig skyldi maðurinn sem missti báða fætur sínar í árásinni á Gaza skilgreina hlutleysi, eða sjómaðurinn sem missti hönd sína í skotárás, maðurinn sem Hjálmtýr Heiðdal segir okkur frá? Eða öll hin, sem eiga um sárt að binda? Hvernig skyldi þeim verða við þegar Öryggisráð SÞ mun neita - að kröfu Bandaríkjastjórnar - að virða niðurstöður rannsóknarskýrslu Goldstone-nefndarinnar? Og hvað skyldi þeim þykja um hlutleysi Norðmanna eða værukærð íslenskra stjórnvalda? Þar er ég líka að tala um sjálfan mig...Engar patentlausnir eru til. En hitt er ljóst að heimurinn má ekki sofna. Og ef hann heldur vöku sinni mun sigur vinnast. Fólkinu í heiminum tókst á endanum að ...
28. Nóvember 2009
SÝNUM PALESTÍNUMÖNNUM SAMSTÖĐU

...Sunnudaginn 29. nóvember verður efnt til samstöðufundar með Palestínu. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík og hefst hann klukkan 15. Gert er ráð fyrir að hann standi í klukkustund eða þar um bil. Þessi dagur er alþjóðlegur samstöðudagur og er haldinn að undirlagi Sameinuðu þjóðanna ár hvert. Það er nefnilega svo einsog margir vita að Sameinuðu þjóðirnar hafa margoft... en síðan mun Björn Thoroddsen og félagar í Guitar Islandicio flytja nokkur lög og Anna Tómasdóttir hjúkrunarnemi flytur erindi og sýnir myndir...
11. Október 2009
ÍSLAND Í ÚTLÖNDUM

Aldrei hef ég verið í eins mörgum viðtölum við erlenda fjölmiðla og á undanförnum dögum - í kjölfar afsagnar minnar úr ríkisstjórn. Þótt ýmsum áhugamönnum um átakalaus stjórnmál hafi ekki orðið svefnsamt vegna væringa sem tengjast afsögninni þá leyfi ég mér að fullyrða að viðtöl við íslenska stjórnmálamenn í erlendum fjölmiðlum eru málstað Íslands til góðs. Þannig get ég huggað mig við að ég kunni að hafa lagt eitthvað gott af mörkum undanfarna daga utan heilbrigðisráðuneytisins....Sem dæmi um vefmiðil sem milljónir heimsækja er vefmiðill breska útvarpsins BBC en þar birtist í dag grein þar sem m.a. er vísað í mín ummæli og Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands...
12. September 2009
RÉTTLĆTANLEGUR SAMANBURĐUR? SVAR: JÁ
22. Júlí 2009
SKILABOĐ VERHAGENS

...Undir það vil ég taka og bæta því við að tilraun til að tengja ríkisábyrgð vegna Iceave við aðildarumsókn Íslands að ESB er ósvífin og hlýtur að hringja varúðarbjöllum meðal Íslendinga. Reyndar fagna ég því að þessi afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar skuli ekki liggja í þagnargildi. Það er mikilvægt fyrir okkur að vera vel upplýst um raunverulega afstöðu viðsemjenda okkar innan Evrópusambandsins nú þegar rætt er um aðild Íslands að sambandinu; að þar eru ekki bara viðhlæjendur á ferð, notalegt samstarfsfólk úr nefndastarfi í Brussel, heldur harðsvíraðir hagsmunagæslumenn, vel verseraðir í utanríkispólitík nýlendutímans.
15. Júní 2009
ŢÖRF LESNING FYRIR AGS, GYLFA OG BJARNA

Allsérstæð umræða hefur farið fram að undanförnu um samhengið á milli ofurvaxta Seðlabankans og niðurskuðrar á ríkisútgjöldum. Þannig hefur komið fram að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrsissjóðsins hafa ákaft varað við vaxtalækkkunum og viljað áður að ríkissjórnin sannaði að hún væri "trúverðug" við að beita niðurskurðarsveðjunni. Undir þetta sjónarmið hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, tekið og í síðustu viku einnig prófessor við Háskóla Íslands, Gylfi Zoega. Fleiri hafa kvatt sér hljóðs til að tala fyrir þessari undarlegu hagfræðikenningu einsog ég hef vikið að hér á síðunni...Allt þetta samhengi hlutanna var til umræðu á nýafstöðnu þingi EPSU, European Public Servises Union, en það eru Evrópusamtök starfsfólks í almannaþjónustu. Þar kom fram sú einarða afstaða að efling almannaþjónustu væri lykilatrið við lausn efnahagskreppu. Á vefsíðu BSRB er...
3. Júní 2009
FRIĐFLYTJANDI HEIMSĆKIR ÍSLAND
Það var ánægjulegt að hitta Dalai Lama, friðarverðlaunahafa Nóbels og trúarleiðtoga Tíbeta að máli í heimsókn hans til Íslands. Í seinni tíð hefur athygli mín oft beinst að Tíbet. Það átti ekki síst við á síðasta ári þegar Ólympíuleikarnir voru haldnir í Kína. Þá gerðist tvennt í senn: Andófsöfl í Tíbet reyndu að vekja athygli á hlutskipti Tíbeta innan Kínverska Alþýðulýðveldisins og Kínaher reyndi af sama tilefni að bæla allt andóf niður. Hér á landi var efnt til mótmæla við kínverska sendiráðið í Reykjavík nokkra laugardaga í röð og hinn 24. ágúst var stofnað til sérstakrar menningar- og baráttuhátíðar í Salnum í Kópavogi af hálfu Vina Tíbets. Ég tók þátt í hvoru tveggja, mótmælunum við kínverska sendiráðið og fundinum í Salnum en þar flutti ég jafnframt ræðu. Á þetta minnti ég þegar ég var spurður...
22. Maí 2009
ALŢJÓĐAHEILBRIGĐISŢINGIĐ Í GENF
Fyrri hluta vikunnar sótti ég ársþing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, World Health Organization (WHO), í Genf í Sviss... Þegar dómarar í Old Baily fangelsinu í London hrundu niður einhvern tímann um miðbik 19. aldarinnar er taugaveiki geisaði innan múranna, rann það upp fyrir bresku yfirstéttinni að heilbrigðismál hinna snauðu kæmu einnig henni við. Hvort það er af sjálfsupphafningu eða einskærri góðmennsku og vorkunsemi að Bill og Melinda Gates eiga margfalt stærri hlut í frjálsum framlögum til WHO en sjálf Bandaríkjastjórn veit ég ekki. Sjálfur gæti ég vel hugsað mér að ...
Frá lesendum
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝĐRĆĐIĐ LEYSIR ALLAN VANDA
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUĐUR
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFĐI ÁTT AĐ SPYRJA ŢJÓĐINA
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Gísli Baldvinsson
25. Ágúst 2010
ORKURÍKIĐ
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson
25. Ágúst 2010
ÓŢOLANDI ÁRÁSIR
ElleE
23. Ágúst 2010
UTANSTEFNU-PÓLITÍK
Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a
22. Ágúst 2010
TAKK ATTAC
Sunna Sara
22. Ágúst 2010
GJALDSKRÁR-HĆKKUN ER EKKI DJÓK
Jóna Guðrún












