Umheimur Mars 2003
Halldór Ásgrímsson var á meðal gesta í Silfri Egils á Skjá einum
í dag. Fram kom að honum hafi þótt ákvörðun um að styðja
Bandaríkjamenn og Breta til árása á Írak erfið. En stundum þyrfti
að taka erfiðar ákvarðanir sagði utanríkisráðherra. Mér er spurn:
væri ekki nær að spyrja hvers vegna þessar ákvarðanir voru svona
erfiðar?
Lesa meira
Ræða flutt á fundi í Austurbæjarbíói 27.03. 2003
Góðir félagar úr baráttunni.
Við komum nú saman til að spila, syngja, lesa og tala fyrir friði
og gegn hernaðarofbeldi og gegn stríði.
Lesa meira
Birtist í DV 27.03.2003
Í viðtali um árásirnar á Írak við DV síðastliðinn föstudag segir
Davíð Oddsson forsætisráðherra að spurningin snúist um það hvort
menn ætli "að standa með okkar helstu bandalagsþjóðum eða í raun
með Saddam Hussein..." Þetta þýðir á mannamáli að þeir sem andæfa
árásunum á Írak séu stuðningsmenn einræðisherrans Saddams
Husseins
Lesa meira
Birtist í Mbl. 24.03.2003
Morgunblaðið spyr í leiðara fimmtudaginn 20. mars hvers vegna
Íslendingar eigi að veita Bandaríkjamönnum stuðning í árásum þeirra
á Írak. Í leiðaranum sem er óvenju fyrirferðamikill er reynt að
svara þessu. Í fáum orðum er röksemdafærslan á þessa leið:
Bandaríkjamenn hafa verið okkur góðir í gegnum tíðina.
Lesa meira
Ráðandi stjórnmálaöfl í Bandaríkjunum telja að
kynþáttabundinn sýklahernaður gæti orðið
"nýtilegt pólitískt verkfæri" á komandi öld. Getum
við lagt trúnað á þetta? Já við getum það og fjallar þessi grein um
það og þá miklu gagnrýni sem er að rísa um heim allan á
stríðsrekstur Bandaríkjamanna, einnig í Bandaríkjunum, og þá af
hálfu hægri manna ekki síður en þeirra sem standa til
vinstri.
Lesa meira
Íslenski fáninn er brenndur á götu í Kaupmannahöfn,
utanríkisráðherrann segir nánast að Alþingi komi ekki við
stefnumótun ríkisstjórnarinnar varðandi hlutdeild okkar í árásunum
á Írak. En áður en lengra er haldið ætla ég að vitna í
sóknarprestinn í Neskirkju í Reykjavík: "NATO dregur okkur lengra
og lengra inní hættulegan stríðsleik.
Lesa meira
Ræða flutt á útifundi á Lækjartorgi 20. mars.
Í ræðunni sem útvarpað var um heim allan á mánudag sagði George
Bush Bandaríkjaforseti að ríkisstjórn sín væri friðsöm. En hún
myndi aldrei láta beita sig ofbeldi; hún myndi aldrei láta hafa í
hótunum við sig; aldrei láta stilla sér upp við vegg.
Lesa meira
Birtist í Mbl. 19.03.2003
Það sem við stöndum frammi fyrir í Íraksmálinu er fyrst og fremst
tæknilegt mál; þ.e.a.s. hvernig við förum að því að réttlæta
innrás. Innrásin sjálf og stríðið er aftur á móti ekkert vandamál.
Yfirburðir okkar, innrásaraflanna, eru svo algerir.
Lesa meira
Stundum hef ég verið við það að trúa því að Morgublaðið ætli sér
í alvöru að hasla sér völl sem frjálslynt stórblað. Vissulega á
blaðið stundum góða spretti. Enginn fjölmiðill tekur eins vel upp
hanskann fyrir geðfatlaða og Morgunblaðið. Enginn fjölmiðill er
eins reiðubúinn að opna síður sínar fyrir hópum á borð við
spilafíkla og tekur á þjóðfélagsmeinum af eins mikilli alvöru og
alúð og Morgunblaðið gerir oft á tíðum. Sama á við þegar kastljósi
er beint að ýmsum álitamálum í efnahagslífi þjóðarinnar.
Lesa meira
Hinn heimsfrægi rithöfundur Gabriel Garcia Màrquez hefur ritað
George Bush Bandaríkjaforseta áhrifamikið bréf sem ég birti hér í
lauslegri endursögn Gunnars Grettissonar en þannig vill þýðandinn í
hógværð láta orða snörun textans yfir á íslensku.
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum