Bandarísk mannréttindasamtök láta að sér kveða
Í fjölmiðlum vestan hafs og austan keppast gagnrýnir fréttamenn
við að fletta upp ummælum helstu haukanna í ráðuneyti Bush
Bandaríkjaforseta nokkur ár aftur í tímann. Í ljós kemur að menn á
borð við Richard Pearl, sem á sæti í ráðgjafaráði Pentagons (
bandaríska stríðsmálaráðuneytisins), Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra og Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráherra og
margir fleiri hafa um árabil hvatt til árása á Írak til að gæta
olíuhagsmuna bandarískra fyrirtækja. Þetta hefur margoft verið
rakið hér á heimasíðunni. Inn í þessa umræðu hafa fléttast samtök
sem þessir aðilar stofnuðu árið 1997, Áætlun um Nýja Öld
Bandaríkjanna, Project for the New American Century, en þau tala
grímulaust fyrir bandarískum heimsyfirráðum. (Um þetta er m.a.
fjallað í grein sem birtist hér á síðunni undir heitinu Veit
ríkisstjórn Íslands hverja hún er að styðja?). Bandarísk
mannréttindasamtök eru nú greinlega að verða sífellt meira uggandi
um hvert stefnir og hvet ég lesendur að kynna sér umfjöllun á vegum
samtakanna Læknar með Ábyrgð, Physicians for Social Responsibility,
PSR. Netsíðan er: www.psr.org
Þessi samtök, sem beita sér gegn kjarnorkuvígbúnaði, hafa m.a.
varað við hættunni sem stafar af stjórnendum Bandaríkjanna. Vakin
er athygli á því að Bush stjórnin hefur sagt upp samningum sem eiga
að hefta útbreiðslu kjarnorkuvopna og má í því sambandi nefna
samninginn um bann við langdrægum gagnflaugum frá árinu 1972,
Antiballistic Missile Treaty, ABM samkomulagið sem svo er nefnt á
ensku. Þá vekja samtökin athygli á því að nú sé talað um
möguleikann á að vera fyrri til að beita kjarnorkuvopnum og að nota
smáar sprengjur í takmörkuðum hernaði. Í nýlegu ákalli til
bandarískra þegna frá þessum samtökum segir m.a. á ensku: "By
ordering the development of new nuclear warheads, withdrawing our
country from numerous non-proliferation and international treaties,
and drawing up plans for a U.S. strike with nuclear weapons, our
leaders have made the unthinkable more likely than ever
before."
Með öðrum orðum , með þessa menn við stjórnvölinn er það sem við
áður töldum ómögulegt orðið að raunverulegri hættu. Þar er átt við
beitingu kjarnorkuvopna af hálfu Bandaríkjamanna.