Umheimur September 2004
Grein sem birtist í gær 9/11 í Theran Times er
merkileg fyrir ýmissa hluta sakir og þá sérstaklega fyrir yfirvegun
og yfirsýn greinarhöfundar, sem heitir Hamid
Golpira. Hann hvetur til þess að 9/ 11 verði gerður að
alþjóðlegum minningardegi. Í niðurlagi greinar sinnar segir hann,
að slík athöfn á heimsvísu "til minningar um allt það saklausa
fólk sem lét lífið þennan dag gæti orðið til að stuðla að friði og
sanngjarnari heimsmenningu". Greinarhöfundur minnir okkur
síðan á að hinn 9. september árið 2001 hafi fleira saklaust
fólk látið lífið en þeir sem þann dag voru drepnir í New York og
Washington. Þannig hafi á þessum eina degi 30 þúsund börn og 8
þúsund fullorðnir dáið úr hungri og sjúkdómum sem rekja megi
til fátæktar. "Börnin í þriðja heiminum upplifa 9/11 á hverjum
einasta degi". Síðan rekur Hamid Golpira atburði sem áttu sér
stað á þessum tíma víðs vegar um heiminn og er það umhugsunarverð
lesning. Þessi nálgun opnar víða sýn á heiminn. Hún hvetur til
raunsæis og er stefnt gegn fordómum. Hún er umburðarlynd. Ég læt
greinina fylgja á ensku og síðan vefslóðir bæði á þessa grein og
blaðið sem hún birtist í.
Lesa meira
Þrjú ár eru nú liðin frá árásunum á New York og Washington og er
í dag haldin minnigar- og menningardagskrá í
Nýju róttæku miðstöðinni að Garðastræti 2
(101 Reykjavík), um atburðina 11. september 2001 og eftirköst
þeirra. Stofnun Nýju róttæku miðstöðvarinnar er lofsvert
framtak sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Það er
Gagnauga.is sem stendur að skipulegningunni en
fyrir þá sem ekki til þekkja er athyglisvert að fara inn á þann
róttæka og gagnrýna vef. Eins og fram kemur í meðfylgjandi dagskrá
...
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum