Umheimur 2013
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 03.11.13
Þegar
menn vilja nefna einhvern augljósan sparnað í útgjöldum ríkisins er
utanríkisþjónustan auðveldasta fórnarlambið. Allir eru tilbúnir að
skera niður þar - spara milljarða - ekkert mál. Alla vega séð úr
fjarlægð. Og oft hefur utanríkisþjónustan gefið höggstað á sér.
Fríðindi starfsfólks, rándýrt húsnæði og gæluverkefni. En þá vill
hitt gleymast sem jákvætt er, farvegurinn sem hún skapar fyrir
tengsl og menningarsamskipti ... Sjálfum brá mér ögn við þegar
Gunnar Bragi utanríkisráðherra kvaðst ætla að fjölga sérfræðingum í
Brussel ... En samstarfið við útlönd fer ekki einvörðungu fram í
gegnum utanríkisþjónustuna eða formleg tengsl ríkisins ...
Lesa meira

...Fyrirlestur minn í Berlín fimmtudaginn í síðustu viku
sem bar upp á 30 júní, byggir að hluta til á því sem ég
áður hef sagt nema hvað nú set ég ákveðið fram þú hugsun
að tími sé kominn til að stíga út úr nýlendutíma
síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta hinnar 20. þar sem
Kalda stríðið setti mark sitt á öll alþjóðasamskipti - m.a.
endurspeglað í hvaða ríki hafa neitunarvald í Öryggsiráði SÞ.
Á 21. öld þurfum við að segja skilið við þessa arfleifð því hún
heldur heimsbyggðinni í gíslingu. Það birtist okkur m.a.
í Sýrlandkrísunni nú...
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Nú leita að liðlegum manni
sem á lýðinn vill óheft herja
Trúfestu hann sýni og sanni
og liðsinni Samherja.
Nú birtir yfir borginni okkar
bráðum kemur vorið hlýtt
Sjórinn tær og sveitin lokkar
og sumarið blómum prýtt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allt Frá lesendum