STJÓRNMÁLASLIT OG BARENEBOIM

Ég er óráðinn í því hvað mér finnst vera rétt að gera varðandi
stjórnmálaslit við ofbeldisfullt ríki. Hallast þó gegn því. Mér
finnst hins vegar gott að slíkur möguleiki komi upp í umræðu
gagnvart Ísrael vegna ofbeldisglæpa ísraelska ríkisins á
Gaza. Það þýðir að fólki er svo misboðið að það vill leita allra
leiða. Eða flestra. Auðvitað vitum við innst inni að hægt er að
sýna andúð okkar á enn markvissari hátt: Með því að slíta
stjórnmálasambandi við Bandaríkin því það eru þau sem skapa Ísrael
alþjóðlegt skjól og hafa gert í meira en hálfa öld. Slíkt kæmi líka
meira við okkur. Alvaran í málinu myndi þá brenna heitar á okkur.
Öllum yrði ljóst hve okkur væri misboðið og að við vildum eitthvað
á okkur leggja.
Eins og til að árétta söguleg tengsl greiddi Öldungadeild
Bandaríkjaþings einróma atkvæði með stuðningsyfirlýsingu við Ísrael
í þann mund sem árásin hófst á Gaza og var þar jafnframt hvatt til
þess að Abbas forseti Palestínu léti af öllu stjórnarsamstarfi við
Hamas:
http://thehill.com/blogs/floor-action/senate/212617-senate-passes-resolution-in-support-of-israel#ixzz38JSl61ek
Til að vita hvað við viljum þurfum við helst að vita hvað hinn
kúgaði vill að við gerum - ef hann yfirleitt hefur á því skoðun.
Það var ljóst í Suður-Afríku. Andspyrnuhreyfingin, ANC, bað um
viðskiptabann þótt það kæmi svörtum Suður-Afríkumönnum illa. Við
hlýddum því kalli. Hér er staðan óljósari.
Það er kallað eftir því að fólk hliðhollt málstað Palestínumanna
flykkist til Palestínu til að verða vitni að því sem er að
gerast. Það hefur Bandaríkjamaðurinn Noam Chomsky, hinn virti
vísindamaður og þjóðfélagsrýnir, reynt en í seinni tíð hefur
honum verið snúið frá. Hann er sjálfur gyðingur og vann á
samyrkjubúi í Ísrael á sjötta áratugnum, en leyfir sér nú að segja
óþægilega hluti.
Flestir Bandaríkjamenn fá þó heimild til að koma til landsins, bæði
Ísraels og Palestínu og Íslendingar fá það almennt. Það fékk
ég að reyna árið 2005 í ógleymanlegri heimsókn sem ég skráði á
tölvu mína (og birti m.a. hér á heimasíðunni en þess má geta að
tölvan var tekin af mér við brottför og fékk ég hana ekki after í
hendur fyrr en nokkrum mánuðum síðar).
Þannig að jafnvel fullt stjórnmálasamband er hlaðið óvissu.
Með stjórnmálaslitum yrðu allar línur hins vegar skýrar: Öllum
Íslendingum sem vildu fara til Palestínu yrði snúið við. Kannski
skiptir það minna máli en hitt að sem riki sýnum við í verki andúð
á ofbeldi. Hvað skal gera er álitamáll. Ég hallast þó að því að
rangt sé að skera á tengslin. Unga fólkið sem á undanförnum árum
hefur farið til Palestínu til starfa þar hefur borið okkur fróðleik
og haldið lifandi í hugum okkar því sem er að gerast. Þetta hefur
verið ómetanlegt. Þá minni ég á að ríki getur haft sig
rækilega í frammi hvort sem er á vettvangi SÞ eða þegar gesti ber
að garði einsog gert var af Íslands hálfu gagnvart Ísrael
og Palestínu í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Málið er ekki einfalt eins og listamaðurinn Daniel Barenboim segir í frábærri grein í breska blaðinu Guradian. Margir munu minnast þess að Daniel Barenboim setti á sínum tíma á laggirnar hljómsveit sem skipuð var bæði ungmennum frá Palestínu og Ísrael. hann vildi að þau töluðu saman milliliðalaust. Grein hans í Guardian er ákall til allra að leggja niður vopn og meðtaka þá staðreynd að framtíðin verður áfram ofbelds- og hatursfull svo lengi sem menn láta ofbeldi og vopnavald móta hana. Menn ræðist við á öðrum forsendum. Sjá: http://www.theguardian.com/commentisfree/2014/jul/24/israelis-palestinians-losers-conflict-suffering-rights
Að lokum en af sama meiði: Í vor var samþykkt illu heilli á þingi Evrópuráðsins að vísa Rússum út af þeirri samkundu alla vega til áramóta vegna afskipta þeirra af Úkraínu. Ég greiddi atkvæði gegn þessu og hef gert grein fyrir þeirri afstöðu minni: http://ogmundur.is/annad/nr/7093/
Nú berast fréttir af því að kommúnistaflokkur Úkraínu verði
bannaður. Dagana sem þing Evrópuráðsins ræddi brottvísun Rússa
urðum við vitni að ofbeldi sem talsmenn þessa stjórnmálaflokks þá
voru beittir, meira að segja var helsti talsmaður hans barinn í
ræðustól í úkraínksa þinginu! Á að vísa Úkraínu út úr evrópskum
samkundum vegna þessa? Flokkar vinstri manna í Evrópuráðinu hafa
mótmælt banni við starfsemi úkraínksa kommúnistaflokksins. Í
óformlegri umræðu þeirra á meðal nú síðustu daga hefur komið
fram tillaga um að Ísraelum verði meinað að sækja þing
Evrópuráðsins sem áheyrnarfulltrúar eins og þeir hafa gert hingað
til. Yrði það til góðs? Ég leyfi mér að efast um það. Betra að ræða
við þá. Í anda Barenboims.
Sjá nýlegt: http://ogmundur.is/annad/nr/7170/