Umheimur
26. Ágúst 2008
ŢAGAĐ UM TÍBET

Vinir Tíbets efndu til vakningarsamkomu í Salnum í Kópavogi á sunnudagskvöld í þann mund sem Olympíuleikunum í Peking lauk með pomp og prakt. Mér hlotnaðist sá heiður að flytja ávarpsorð á þessari samkomu einsog fram hefur komið hér á síðunni.
Frábærir listamenn komu fram við þetta tækifæri, Jón Tryggvi lék og söng, Birgitta Jónsdóttir flutti ljóð og hvatningarræðu, en hún er primus motor í , „Vinum Tíbets" hér á landi ; Jónas Sig. lék og söng, einnig Svavar Knútur, Páll Óskar og Monica komu fram og sjálfur KK var mættur með gítarinn, sannkallað landslið. Tíbetinn Tsewang flutti upplýsandi erindi, við sáum dansatriði og hlýddum á þjóðsöng Tíbets. Þá var Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, heiðraður fyrir að færa mannréttindamál í Tíbet í tal við kínverska ráðamenn í opinberri heimsókn sinni til Kína nýlega. Samkomunni stýrði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir með glæsibrag.
Samkoman var allvel sótt en þó var fámennara en efni stóð til. Hvers vegna skyldi það hafa verið? Gæti það verið vegna þess að samkoman fékk nánast enga kynningu í almennum fjölmiðlum. Að undanskildum vefmiðli DV veit ég ekki til þess að nokkur fjölmiðill hafi birt fréttatilkynningu sem send var út um samkomuna! Ekki RÚV, ekki Morgunblaðið, ekki 24 stundir, ekki Fréttablaðið, ekki Bylgjan, ekki Stöð 2....að því er ég best veit.
Sú var tíðin að fjölmiðlar voru ófeimnir að fjalla um mannréttindabrot innan Kínverska Alþýðulýðveldisins. Hvað hefur breyst? Það sem breyst hefur er þetta: Vesturlönd, þar á meðal Íslendingar, hafa gert sér grein fyrir því að hægt er að græða vel á Kínverjum. Um að gera að hafast ekkert að sem truflað getur útrásarvíkinga með gróðaglampa í auga! Þetta hygg ég að sé skýringin á þögninni. Gæti það líka verið ástæðan fyrir því að tíbetskur maður sem sendi grein til íslenskra fjölmiðla til birtingar meðan á Olympíuleikunum stóð, fékk hana hvergi birta? Greinin var gagnrýnin á alræðisstjórnina í Kína.
Þessa grein er að finna hér: http://www.ogmundur.is/frjalsir-pennar/nr/4035/







Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIĐLAR SKOĐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












