Beint á leiðarkerfi vefsins

Umhverfi

13. Ágúst 2008

FAGRA ÍSLAND Í 1.461 DAG

Birtist í Fréttablaðinu 12.08.08
FB logoÉg hef skrifað greinar í þetta blað undir fyrirsögninni Fagra Ísland, samhljóða stefnuyfirlýsingu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Samfylkingin hét stóriðjustoppi kæmist hún til valda, nú skyldi gefið upp á nýtt, einsog formaðurinn orðaði það í aðdraganda síðustu alþingiskosninga: „Með þessari stefnumótun um hið fagra Ísland hefur Samfylkingin tekið þá skýru stefnu að sú stóriðjustefna sem ríkisstjórnin hefur fylgt á umliðnum árum og boðar á komandi kjörtímabili eigi ekkert erindi við framtíðina. Hún á ekkert erindi við framtíðina, nú er tímabært að stokka upp spilin, gefa upp á nýtt og gefa náttúrunni betri spil á hendi en hún hefur haft...

6. Ágúst 2008

GOTT HJÁ ÞÓRUNNI, EN...

Birtist í Fréttablaðinu 05.08.08.
FB logo...Samráðherrar Þórunnar, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, lýsa því yfir að álver verði byggt á  Bakka hvað sem tautar og raular. Bera í besta lagi í bætifláka fyrir umhverfisráðherra með því að segja að Þórunn sé að sinna nauðsynlegum  formsatriðum. Gagnrýnin á umhverfisráðherra þykir mér ekki byggja á haldbærum rökum.
En hvers vegna efasemdarfyrirvarinn sem ýjað er að í fyrirsögn þessa greinarkorns?
Á umhverfisráðherranum sjálfum er nefnilega svo að skilja að heildstætt umhverfismat muni ekki breyta neinu, að í huga hennar sjálfrar sé...

2. Júlí 2008

TAKK ÞÓRUNN!


Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráherra, upplýsti í Kastljósviðtali í kvöld  að það hefði verið hún sem vann að undirbúningi tónleikanna sem Björk, Sigurrós, Ólöf Arnalds og Ghost Digital og Finnbogi Pétursson  komu fram á í Laugardalnum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Ef ég á að segja alveg einsog er þá hafði mig alltaf grunað einmitt þetta, að á einhvern hátt væru þessir frábæru tónleikar Samfylkinginni að þakka. En að það hafi verið sjálfur umhverfisráðherrann sem skipulagði tónleikana var extra bónus. Ef ég skildi viðtalið við Þórunni umhverfisráðherra rétt þá höfðu þær unnið að undirbúningi tónleikanna saman hún og Björk. Frábært framtak. Takk. Allt í þágu náttúruverndar. Gegn stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Yfirlýsingarnar sem birtust á risaskjá á tónleikunum um náttúruspjöllin voru sláandi. Skyldi textinn hafa verið...

28. Júní 2008

ÍSLANDSTÖFFARAR: BJÖRK, LILJA OG SIGURRÓS


Því miður missti ég af fyrstu tónleikaatriðunum í Laugardalnum í kvöld, auglýstum Radium og Ólöfu Arnalds.  Radium á ég eftir að kynnast, líka Ólöfu Arnalds sem allir sem til þekkja segja að sé á leið í fyrstu deild. Til hamingju með það Ólöf. Enginn deilir um að í fyrstu deildinni eru hins vegar Björk sem sannaði í kvöld hvað það er sem til þarf til að fanga heiminn! Það gerði Sigurrós líka. Í gærkvöldi hlustaði ég á Benna Hemm Hemm á útgáfuhátíð Draumalands Andra Snæs fyrir enskumælandi markað í Norræna húsinu. Þá rann það upp fyrir mér - eða kannski á ég að segja að ég hafi fengið staðfest - það sem ég áður vissi, að til er orðinn hinn íslenski tónn; íslenskt sérkenni í tónlist! Glæsilegt fólk! Gæsahúð og unaðstilfinning!! Mikið er stórkostlegt að finna fyrir baráttu þessa fólks fyrir náttúru Íslands. En þá er kominn þriðji töffarinn sem ég vil nefna. Það er hún Guðfríður Lilja...

27. Júní 2008

ER SAMFYLKINGIN ORÐIN GALIN?


...Ég hélt að hámarkinu væri náð þegar Condi Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, höfuðtalsmaður Íraksinnrásarinnar og Guantanamó pyntingabúðanna,  fékk skartgrip að gjöf frá formanni Samfylkingarinnar og kossaregn frá þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Geir. Þá hélt ég sannast sagna að niðurlægingin gæti ekki orðið meiri. Samfylkingin fékk fylgi í síðustu kosningum m.a. vegna stefnuyfirlýsingar sinnar undir kjörorðinu „Fagra Ísland". Fyrirheitin um umhverfisvernd eru nú svikin einsog að drekka vatn. Ég spyr, hvaða umhverfis telur ráðherra umhverfismála sig vera að gæta? Stássstofu ríkisráðsfunda á Bessastöðum? Eru ráðherrastólar dýrmætari en náttúruperlur Íslands? Er Samfylkingin algerlega samviskulaus? Eða er hún...

9. Maí 2008

ER REYKJAVÍKURBORG SVONA ÓDÝR?


Ekki ætla ég að útiloka að eitthvað geri Rio Tinto Alcan vel. Eitt veit ég þó að Rio Tinto Alcan er engin brautryðjandi í umhverfismálum. Því fer fjarri. Reyndar svo fjarri að Río Tinto er talinn einhver versti og ósvífnasti umhverfissóði heimsins. Þessu fyrirtæki hefur Reykjavíkurborg nú heimilað að kaupa sig inn í átak um að fólk hjóli eða gangi í vinnuna. Mér er kunnugt um að svo ofbjóði jafnvel hörðustu umhverfissinnum samanlögð ósvífni stjórnvalda í Reykjavík og Rio Tinto að þeir hafi varla geð í sér að taka þátt í átakinu. Fólki finnst með öðrum orðum það vera misnotað. Þetta minnir óneitanlega á það þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sæmdi stríðsglæpafyrirtækið og umhverfisspillinn Bechtel sérstökum ...

8. Apríl 2008

FAGRA ÍSLAND - DAGUR SEX

Birtist í Fréttablaðinu 07.04.08.
FB logo..Síðan gerist það á fimmtudaginn í síðustu viku að upp rennur enn einn dagurinn í svikasögu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Þá hafnar umhverfisráðherra kæru Landverndar vegna álverksmiðju í Helguvík. Umhverfisráðherra kvað sína eigin ákvörðun um að hafna kærunni ekki vera sér að skapi. En svona væri þetta bara, hún gæti hugsað sér að breyta stjórnarskránni. En hvernig væri að reyna að breyta stefnu ríkisstjórnar sem Samfylkingin á aðild að og standa þannig við þau fyrirheit sem kjósendum voru gefin fyrir ...

6. Desember 2007

LAGAHEIMILDIR SKORTIR FYRIR FRAMKVÆMDUM VIÐ ÞJÓRSÁ!


Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár án nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög. Í dag birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist ...

5. Desember 2007

SJÓN ER SÖGU RÍKARI


...Það sem við, sem andæfðum þessum áformum, því miður vissum eða grunaði sterklega var að ákvörðun um virkjun hefði í reynd verið tekin...  Það skyldi virkjað hvað sem tautaði og raulaði. Á þessu ferðalagi okkar sáum við fjölda þungavinnuvéla... Skýringin var sögð sú að verið væri að rannsaka svæðið. Hverju barni mátti þó vera ljóst... Þetta flaug mér í hug þegar ég sá í dag plakat með myndum og spurningum frá nátturuverndar- og umhverfissamtökunum Sól á Suðurlandi. Á plakatinu má sjá framkvæmdir við Þjórsá...

28. Október 2007

ÁKALL UM NÁTTÚRUVERND ÚR KRÝSUVÍKURKIRKJU


Á sunnudag fyrir réttri viku predikaði séra Gunnþór Ingason, prestur í Hafnarfirði, í Krýsuvíkurkirkju. Kirkjan er agnarsmá, byggð um miðja 19. öld. Stærð kirkjunnar er hins vegar í engu samræmi við þá uppljómun sem menn verða þar fyrir innandyra. Altaristaflan er eftir Svein Björnsson listmálara heitinn, en "hús málarans" er einmitt ekki langt undan...Þetta eru umhugsunarverð orð frá séra Gunnþóri Ingasyni. Nýlega birtist hér á síðunni tilvitnun í áhrifaríka grein sem hinn kunni kvikmyndagerðarmaður Erendur Sveinsson ritaði í Fjarðarpóstinn ekki alls fyrir löngu. Hann varaði þar við því að Krýsuvíkursvæðið yrði stóriðju og gróðahyggju að bráð. Erlendur spyr hvort menn ætli að láta ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Ágúst 2010

STEINHISSA

Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson

27. Ágúst 2010

LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA

Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári  til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur

26. Ágúst 2010

ÁLIT ÚT OG SUÐUR

Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn

25. Ágúst 2010

HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA

Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson

25. Ágúst 2010

VELJUM RÉTT HUGTÖK

Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson

25. Ágúst 2010

ORKURÍKIÐ

....
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson

25. Ágúst 2010

ÓÞOLANDI ÁRÁSIR

Erfitt er að horfa upp á endalausar árásir og níð Evrópubandalagssinna og svokallaðra ´jafnaðarmanna´ gegn Jóni Bjarnasyni fyrir að það eitt að standa eins og maður í lappirnar og krefjast þess að umsóknin inn í Evrópusambandið verði dregin til baka. Fáráðsumsóknin var blekking ein um ´viðræður´ sem hafa enga þýðingu og sótt var um með pólitísku ofbeldi gegn vilja stærri hluta þjóðarinnar sem vildu fá að kjósa fyrst. Skrýtin eru rök Evrópusambandssinna, sem halda oft bæði fram að við ...
ElleE

23. Ágúst 2010

UTANSTEFNU-PÓLITÍK

Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a

22. Ágúst 2010

TAKK ATTAC

Ég sé á http://orkuaudlindir.is/ að stöðugur straumur er inn á síðuna að undirrita áskorun til varnar orkuauðlindunum. Mig langar til að þakka Attac samtökunum og aðstandendum undirskrifatsöfnunarinnar um almannaeign á orkuauðlindum fyrir framtak sitt á Menningarnótt. Það var gaman að fylgjast með listafólki "troða upp" fyrir framan gamla Hegningarhísið og fylgjast með því hve margir virtust vera að skrifa undir áskorunina. Ég fór þarna þrisvar framhjá og var ...
Sunna Sara 

22. Ágúst 2010

GJALDSKRÁR-HÆKKUN ER EKKI DJÓK

... Kjósendum á sölusvæði Reykjavíkurveitnanna er ætlað að rétta af fyrirtækið svo það geti framleitt orku fyrir stóriðju. Ef þetta er gert að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þarf Jón Gnarr að segja frá því beint út. Sem sigurvegari kosninganna ber honum að koma fram og tala við okkur kjósendur. Ekki skjóta öðru fólki fyrir sig eins og skjöldum. Ikke spille dum. Hækkun orkuveitnanna er ekki djók, atriði á skemmtikvöldi, eða uppistand. Skemmtimennirnir Gnarr og Dagur hafa engan rétt á að skemmta sér á minn kostnað. Hver setti Orkuveituna á hausinn? Ekki var það Davíð!  
Jóna Guðrún



BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

13. Ágúst 2010

Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL

Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...

4. Ágúst 2010

Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM

...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í  greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

Slóðin mín:

Umhverfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta