Umhverfi 2004
Fyrir botni Hvalfjarðar hafa íslensku olíufélögin birgðatanka
fyrir eldsneyti. Einng mun NATÓ hafa þarna tanka frá fyrri tíð.
Eftir því sem ég kemst næst hirðir hernaðarbandalagið vel um sína
tanka. Ekki verður hið sama sagt um olíufélögin. Ryðgaðir tankarnir
blasa við þeim sem eiga leið um Miðsand í Hvalfirði. Getur það
talist forsvaranlegt að olíufélögin hætti að sinna viðhaldi
birgðageymslanna og láti þær ryðga niður? Þetta er ekki bara ljótt
að sjá heldur líka hættulegt...
Lesa meira
Ástæðan fyrir því að ég sé ástæðu til að taka þetta upp er sú að
þrátt fyrir allt ber ég nokkra virðingu fyrir Einari K.
Guðfinnssyni og vil því sýna honum þá virðingu að svara honum. Það
er rangt hjá honum að ég sé að kasta rýrð á starf Íslendinga í
Kabúl. Ég hef jafnan tekið það skýrt fram að Íslendingarnir sem þar
starfa við stjórn flugvallarins, hafi að dómi allra þeirra sem ég
hef heyrt til, staðið sig mjög vel. Ég hef hins vegar gagnrýnt að
...
Lesa meira
Auðhringurinn Alcoa er hættur að fara um heiminn í leit að
vinum. Eftir að hann kynntist Framsóknarflokknum á Íslandi
lætur hann sér nægja að ferðast um Ísland í leit að
virkjunarkostum. Heima fyrir, í Bandaríkjunum, lokar Alcoa álverum
sínum hverju á fætur öðru eftir að Finnur, Valgerður og Halldór
buðu upp á slík kostakjör við kaup á raforku við Kárahnjúka,
að öðru eins höfðu menn aldrei kynnst. Frá þeim tímapunkti
þegar Norsk Hydro gaf frá sér að reyna rekstur álverksmiðju á
Austurlandi og Framsóknarflokkurinn ákvað að gera menn út til að ná
í kaupanda að orku frá væntanlegri Kárahnjúkavirkjun hvað sem það
kostaði, mátti öllum ljóst vera að...
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Landsmenn fagna nú lokast sárið
því loksins kláraðist ótuktar árið
sprautu víst fáum
bættan hag sjáum
og fljótlega líður frá Cóvíd fárið.
Ég óska öllum árið gott
eftir óþverra pestina
Kófinu nú komum á brott
og kjósum svo í restina.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Bönkum ræna bannsettu,
bófum auðinn fólu.
Ráðherra festa á rakettu,
reikna braut um sólu.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum